Sex borgarstjórar á fimm árum 21. janúar 2008 22:40
Sex borgarstjórar hafa setið í Reykjavík á aðeins fimm árum eftir nýjustu sviptingar í borgarmálunum þar sem Ólafur F. Magnússon, oddviti F-lista, sleit samstarfi við gömlu R-listaflokkana og gekk til samstarfs við Sjálfstæðislflokkinn. Borgarstjórakapallinn hófst þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hvarf úr stóli borgarstjórar 1. febrúar 2003 til þess að taka þátt í landsmálapólitíkinni. Við embættinu tók Þórólfur Árnason sem sat til 1. desember 2004. Hann hvarf úr embætti vegna deilna í tengslum við olíusamráðsmálið. Steinunn Valdís Óskarsdóttir tók við af Þórólfi og sat út síðasta kjörtímabil, eða til 13. júní 2006. Þá tók Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson við eftir að sjálfstæðismenn mynduðu meirihluta með Framsóknarflokknum eftir borgarstjórnarkosningar. Vilhjálmur hvarf hins vegar úr borgarstjórastóli um miðjan október í fyrra í kjölfar deilna í meirihlutanum um málefni REI. Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, gekk til meirihlutasamstarfs við F-lista, Samfylkinguna og Vinstri - græna og þá varð Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Hann virðist aðeins munu sitja í um 100 daga því samkvæmt tíðindum dagsins tekur Ólafur F. Magnússon við af honum. Við þetta má bæta að samkvæmt samkomulagi Ólafs F. og sjálfstæðismanna verður Vilhjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri á næsta ári og út kjörtímabilið, það er haldi nýr meirihluti. Þetta þýðir að borgarstjórar Reykvíkinga verða orðnir sjö á tveimur kjörtímabilum.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira