Viðskipti innlent

Áhrif hlutafjáraukningarinnar óljós

Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður Greiningadeildar Landsbankans.
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður Greiningadeildar Landsbankans.

Áhrif hlutafjáraukningarinnar í Glitni eru óljós vegna þess að það er svo margt að gerast í umheiminum, að sögn Eddu Rósar Karlsdóttur, forstöðumanns Greiningadeildar Landsbankans. Tilkynnt var í morgun að Seðlabanki Íslands myndi auka hlutafé í Glitni um 84 milljarða króna.

Edda Rós bendir á að Holland, Belgía og Lúxemburg hafi verið að safna saman 11 milljörðum evra til að bjarga Fortes bankanum. Þá hafi dregið til tíðinda í Bandaríkjunum og Bretar hafi verið að þjóðnýta Bradford og Bingley.

„Það er allt að gerast út um allt," segir Edda Rósa í samtali við Vísi.








Tengdar fréttir

Evrur frá ríkinu auðvelda Glitni að afla fjár annars staðar

Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands segir að ljóst að Glitnir hefur lent í verulegum vandræðum. Hann segir inngrip ríkisins útvega bankanum talsvert af erlendum gjaldeyri annars vegar og auðvelda bankanum að afla fjár annars staðar hins vegar.

Geir segir ástæðulaust fyrir fólk að óttast um innistæður sínar

Geir Haarde forsætisráðherra segir ástæðulaust fyrir fólk að óttast um innistæður sínar í Glitni. Á fundi í Stjórnarráðinu í dag sagði Geir að Glitnir, sem ríkið hefur keypt 75 prósent í, væri vel rekinn banki sem hafði lent í vandræðum vegna alþjóðlegra markaðsaðstæðna. Hann sagði ekki við stjórn eða starfsfólk bankans að sakast.

Glitnir þjóðnýttur fyrir 84 milljarða króna

Ríkisstjórn Íslands mun eignast 75 prósenta hlut í Glitni samkvæmt samkomulagi milli ríkisstjórnar Íslands og eigenda Glitnis banka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum.

Norðmenn hvattir til að setja sparifé sitt í Glitni í Noregi

Norðmenn eru nú hvattir til þess að setja sparifé sitt á innlánsreikninga hjá Glitni bank ASA í Noregi. Innlánsreikningarnir séu með hæstu ávöxtun í landinu og þar að auki sé nú komin á tvöföld ríkisábyrgð á reikningana.

Norðmenn hafa miklar áhyggjur af örlögum Glitnis

Norskir viðskiptamiðlar hafa flutt ítarlegar fréttir af örlögum Glitnis og greinilegt er að Norðmenn hafa miklar áhyggjur af málinu. Um leið og fréttist af kaupum ríkissjóðs fékk DnB Nor bankinn mikinn skell í kauphöllinni í Osló en hlutir í honum féllu um rúmlega 7% við tíðindin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×