Evrur frá ríkinu auðvelda Glitni að afla fjár annars staðar 29. september 2008 10:49 Gylfi Magnússon.
Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands segir að ljóst að Glitnir hefur lent í verulegum vandræðum. Hann segir inngrip ríkisins útvega bankanum talsvert af erlendum gjaldeyri annars vegar og auðvelda bankanum að afla fjár annars staðar hins vegar. „Þetta eru mjög miklar fréttir," segir Gylfi. „Það er augljóst að Glitnir hefur lent í verulegum vandræðum sem kalla á þetta inngrip. Það hefur verið talað um erfiða fjármögnun í elendri mynt sem kemur ekkert á óvart," segir Gylfi og bendir á að þjóðarbúið allt búi við verulegan vanda sem endurspeglast í því að það eru mjög miklar skammtíma skuldir í erlendri mynt sem þarf endalaust að endurfjármagna. „Glitnir hefur greinilega lent í vandræðum með þetta," segir Gylfi og bætir því við að viðbrögð Seðlabankans, að bæta inn eigið fé í evrum ættu að gera tvennt. „Annarsvegar að útvega bankanum talsvert af erlendum gjaldeyri og síðan að hækka eiginfjárhlutfall hans sem ætti að auðvelda bankanum að afla fjár annars staðar." Aðspurður hvaða áhrif þessar fréttir hafa á fjármálalífið almennt segir Gylfi: „Þetta eru auðvitað afleitar fréttir fyrir þá sem voru hluthafar í bankanum. Þeirra hlutur er samkvæmt þessu metinn á 28 milljarða og það er veruleg lækkun frá því fyrir helgi. Það er einfaldlega eitthvað sem hluthafarnir verða að sætta sig við. Þeir eiga enga valkosti en þetta eru auðvitað afleitar fréttir fyrir þá." Gylfi segir ljóst að fleiri fregnir af gjaldþroum hjá almennum fyrirtækjum eigi eftir að berast á næstunni. „En um framtíð hinna fjármálafyrirtækjanna vil ég ekki vera með neinar getgátur um," segir Gylfi Magnússon.
Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Sjá meira