Skoðun

Útkall í desember

Kristinn Ólafsson skrifar um flugeldasölu

Desembermánuður hefur verið annasamur hjá sjálfboðaliðum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þúsundir klukkustunda hafa farið í aðstoð við samborgarana. Ekki skiptir máli hvort fergja þurfi þakplötu á höfuðborgarsvæðinu eða aðstoða fastan bíl á fjallvegi á Hellisheiði; björgunarsveitirnar eru alltaf viðbúnar og sinna kallinu.

Uppbygging björgunarmála er einstök hér á landi. Landsmenn treysta á björgunarsveitirnar þegar veður eru vond og færð spillist. Alltaf er hægt að treysta á björgunarsveitirnar og þær leysa alltaf verkefni sín örugglega án þessa að taka greiðslu fyrir. Í desember þurfa björgunarsveitirnar að treysta á að þjóðin standi með þeim í flugeldasölunni. Flugeldasalan er langstærsta fjáröflun björgunarsveitanna og stendur þessi fjáröflun undir stærstum hluta rekstrar þeirra. Björgunarsveitirnar hafa byggt upp flugeldamarkaðinn og kennt þjóðinni að fara með þessa vöru á ábyrgan hátt. Til dæmis hefur flugeldagleraugum verið dreift síðustu árin til almennings og er það orðin almenn regla að allir sem fara með flugelda noti flugeldagleraugu.

Undanfarið hefur samkeppnin á flugeldamarkaðnum aukist verulega og hafa fjölmargir einkaaðilar komið inn á markaðinn og farið að keppa við björgunarsveitirnar. Þessir aðilar nota mismunandi aðferðir til að koma vörum sínum á framfæri og reyna sumir að líkja eftir flugeldamörkuðum björgunarsveitanna með því að skreyta sölustaðina með blikkljósum og klæðast fatnaði í skærum litum. Mikilvægt er að almenningur hugi vel að því hvar flugeldarnir eru keyptir og forðist eftirlíkingar.

Flugeldamarkaðir björgunarsveitanna eru langoftast vel merktir og því ætti ekki að vera erfitt að fullvissa sig um að réttur sölustaður hafi orðið fyrir valinu.

Án stuðnings almennings og velvilja atvinnurekenda gætum við aldrei haldið úti svo öflugum björgunarsveitum. Það hefur myndast sátt um þetta fyrirkomulag og er mikilvægt að standa vörð um það.

Óska öllum gleðilegra áramóta og hvet fólk til að fara varlega með flugeldana og fylgja leiðbeiningum.

Höfundur er framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar.




Skoðun

Sjá meira


×