Útkall í desember 29. desember 2008 06:00 Kristinn Ólafsson skrifar um flugeldasölu Desembermánuður hefur verið annasamur hjá sjálfboðaliðum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þúsundir klukkustunda hafa farið í aðstoð við samborgarana. Ekki skiptir máli hvort fergja þurfi þakplötu á höfuðborgarsvæðinu eða aðstoða fastan bíl á fjallvegi á Hellisheiði; björgunarsveitirnar eru alltaf viðbúnar og sinna kallinu. Uppbygging björgunarmála er einstök hér á landi. Landsmenn treysta á björgunarsveitirnar þegar veður eru vond og færð spillist. Alltaf er hægt að treysta á björgunarsveitirnar og þær leysa alltaf verkefni sín örugglega án þessa að taka greiðslu fyrir. Í desember þurfa björgunarsveitirnar að treysta á að þjóðin standi með þeim í flugeldasölunni. Flugeldasalan er langstærsta fjáröflun björgunarsveitanna og stendur þessi fjáröflun undir stærstum hluta rekstrar þeirra. Björgunarsveitirnar hafa byggt upp flugeldamarkaðinn og kennt þjóðinni að fara með þessa vöru á ábyrgan hátt. Til dæmis hefur flugeldagleraugum verið dreift síðustu árin til almennings og er það orðin almenn regla að allir sem fara með flugelda noti flugeldagleraugu. Undanfarið hefur samkeppnin á flugeldamarkaðnum aukist verulega og hafa fjölmargir einkaaðilar komið inn á markaðinn og farið að keppa við björgunarsveitirnar. Þessir aðilar nota mismunandi aðferðir til að koma vörum sínum á framfæri og reyna sumir að líkja eftir flugeldamörkuðum björgunarsveitanna með því að skreyta sölustaðina með blikkljósum og klæðast fatnaði í skærum litum. Mikilvægt er að almenningur hugi vel að því hvar flugeldarnir eru keyptir og forðist eftirlíkingar. Flugeldamarkaðir björgunarsveitanna eru langoftast vel merktir og því ætti ekki að vera erfitt að fullvissa sig um að réttur sölustaður hafi orðið fyrir valinu. Án stuðnings almennings og velvilja atvinnurekenda gætum við aldrei haldið úti svo öflugum björgunarsveitum. Það hefur myndast sátt um þetta fyrirkomulag og er mikilvægt að standa vörð um það. Óska öllum gleðilegra áramóta og hvet fólk til að fara varlega með flugeldana og fylgja leiðbeiningum. Höfundur er framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir Skoðun Framkvæmdir við gatnamót Höfðabakka Árni Guðmundsson Skoðun Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Ekkert barn á Íslandi á að búa við fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Öll lífsins gæði mynda skattstofn Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson skrifar Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar Skoðun Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir skrifar Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Jólagjöfin í ár Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samsköttun, samnýting eða skattahækkun? Kristófer Már Maronsson skrifar Skoðun Framkvæmdir við gatnamót Höfðabakka Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Á krossgötum í Atlantshafi Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Börnin fyrst – er framtíðarsýn Vestmannaeyja að fjara út? Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Jólahugvekja trans konu Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Erum við sérstökust í heimi? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Stóra myndin í fjárlögum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson skrifar Skoðun Blessuð jólin, bókhaldið og börnin Kristín Lúðvíksdóttir skrifar Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson skrifar Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Bréfið sem aldrei var skrifað Grímur Atlason skrifar Skoðun Hugleiðingar úr Dölum um framkomin drög að Samgönguáætlun 2026-2040 Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Íslensk ferðaþjónusta í nýju landslagi Ólína Laxdal skrifar Skoðun Sköpum öflugt, hafsækið atvinnulíf á viðskiptalegum forsendum! Gunnar Tryggvason skrifar Skoðun Hefurðu heyrt söguna? Ísak Hilmarsson skrifar Skoðun Teygjum okkur aðeins lengra Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamarsvirkjun: Þegar horft er framhjá staðreyndum og lýðræði Ásrún Mjöll Stefánsdóttir skrifar Skoðun Réttlæti án sannleika er ekki réttlæti Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Spilakassar í skjóli mannúðar og björgunar Alma Hafsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Kristinn Ólafsson skrifar um flugeldasölu Desembermánuður hefur verið annasamur hjá sjálfboðaliðum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þúsundir klukkustunda hafa farið í aðstoð við samborgarana. Ekki skiptir máli hvort fergja þurfi þakplötu á höfuðborgarsvæðinu eða aðstoða fastan bíl á fjallvegi á Hellisheiði; björgunarsveitirnar eru alltaf viðbúnar og sinna kallinu. Uppbygging björgunarmála er einstök hér á landi. Landsmenn treysta á björgunarsveitirnar þegar veður eru vond og færð spillist. Alltaf er hægt að treysta á björgunarsveitirnar og þær leysa alltaf verkefni sín örugglega án þessa að taka greiðslu fyrir. Í desember þurfa björgunarsveitirnar að treysta á að þjóðin standi með þeim í flugeldasölunni. Flugeldasalan er langstærsta fjáröflun björgunarsveitanna og stendur þessi fjáröflun undir stærstum hluta rekstrar þeirra. Björgunarsveitirnar hafa byggt upp flugeldamarkaðinn og kennt þjóðinni að fara með þessa vöru á ábyrgan hátt. Til dæmis hefur flugeldagleraugum verið dreift síðustu árin til almennings og er það orðin almenn regla að allir sem fara með flugelda noti flugeldagleraugu. Undanfarið hefur samkeppnin á flugeldamarkaðnum aukist verulega og hafa fjölmargir einkaaðilar komið inn á markaðinn og farið að keppa við björgunarsveitirnar. Þessir aðilar nota mismunandi aðferðir til að koma vörum sínum á framfæri og reyna sumir að líkja eftir flugeldamörkuðum björgunarsveitanna með því að skreyta sölustaðina með blikkljósum og klæðast fatnaði í skærum litum. Mikilvægt er að almenningur hugi vel að því hvar flugeldarnir eru keyptir og forðist eftirlíkingar. Flugeldamarkaðir björgunarsveitanna eru langoftast vel merktir og því ætti ekki að vera erfitt að fullvissa sig um að réttur sölustaður hafi orðið fyrir valinu. Án stuðnings almennings og velvilja atvinnurekenda gætum við aldrei haldið úti svo öflugum björgunarsveitum. Það hefur myndast sátt um þetta fyrirkomulag og er mikilvægt að standa vörð um það. Óska öllum gleðilegra áramóta og hvet fólk til að fara varlega með flugeldana og fylgja leiðbeiningum. Höfundur er framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun
Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar
Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar
Skoðun Hugleiðingar úr Dölum um framkomin drög að Samgönguáætlun 2026-2040 Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Hamarsvirkjun: Þegar horft er framhjá staðreyndum og lýðræði Ásrún Mjöll Stefánsdóttir skrifar
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun