Viðskipti innlent

Vextir gætu hækkað

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, fjallar um þróun og horfur á ársfundi bankans í marslok.
Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, fjallar um þróun og horfur á ársfundi bankans í marslok. Markaðurinn/Anton
Farið gæti svo að Seðlabanki Íslands hækki stýrivexti um 0,5 prósentustig á morgun, gangi eftir spá greiningardeilda Landsbankans og Glitnis. Hjá Kaupþingi gera sérfræðingar greiningardeildar hins vegar ráð fyrir óbreyttum vöxtum áfram.

Seðlabankinn kynnir vaxtaákvörðun sína í fyrramálið, samhliða því að kynnt verður útgáfa Peningamála, efnahagsrits bankans. Þar er farið yfir horfur og birtar væntingar Seðlabankans til þróunar efnahagsmála, auk þess sem kynntur er sá stýrivaxtaferill sem líklegastur þykir miðað við þær horfur.

Landsbankinn og Glitnir segja væntingar um aukna verðbólgu þrýsta á um stýrivaxtahækkun Seðlabankans, en þeir verða 15,5 prósent gangi spá þeirra eftir. Kaupþing telur hins vegar að vextirnir haldist í 15 prósentum, þótt gengisveiking og meðfylgjandi verðbólguskot komi til með að fresta vaxtalækkunarferli bankans. Kaupþing telur að Seðlabankinn lækki vexti í september og fari þeir þá í 14,5 prósent. Greining Glitnis er sama sinnis um upphaf lækkunarferlisins, en telur að vextir verði ekki komnir í 14,5 fyrr en í lok árs.

Greiningardeild Landsbankans heldur að lækkunarferlið hefjist síðar, eða í nóvember og þá verði lækkað um 0,75 prósentustig og árið endi í 14,75 prósenta stýrivöxtum. Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildarinnar, áréttar hins vegar að spá þessi sé breytingum háð, og verði uppfærð eftir því sem fram komi vísbendingar í hagvísum.

Sérfræðingar búast við aðgerðum ríkis og Seðlabanka sem stutt geti við gengi krónunnar. „Við eigum von á tvennu, stækkun gjaldeyrisforðans og skiptasamningum við erlendan seðlabanka,“ segir Edda Rós. Hún kveðst þó ekki búast við miklum yfirlýsingum um þessi mál á fundi Seðlabankans á morgun, enda kunni samningar um þessi mál að vera þyngri í vöfum en menn hafi almennt gert ráð fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×