Vextir gætu hækkað Óli Kristján Ármannsson skrifar 9. apríl 2008 06:45 Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, fjallar um þróun og horfur á ársfundi bankans í marslok. Markaðurinn/Anton
Farið gæti svo að Seðlabanki Íslands hækki stýrivexti um 0,5 prósentustig á morgun, gangi eftir spá greiningardeilda Landsbankans og Glitnis. Hjá Kaupþingi gera sérfræðingar greiningardeildar hins vegar ráð fyrir óbreyttum vöxtum áfram. Seðlabankinn kynnir vaxtaákvörðun sína í fyrramálið, samhliða því að kynnt verður útgáfa Peningamála, efnahagsrits bankans. Þar er farið yfir horfur og birtar væntingar Seðlabankans til þróunar efnahagsmála, auk þess sem kynntur er sá stýrivaxtaferill sem líklegastur þykir miðað við þær horfur. Landsbankinn og Glitnir segja væntingar um aukna verðbólgu þrýsta á um stýrivaxtahækkun Seðlabankans, en þeir verða 15,5 prósent gangi spá þeirra eftir. Kaupþing telur hins vegar að vextirnir haldist í 15 prósentum, þótt gengisveiking og meðfylgjandi verðbólguskot komi til með að fresta vaxtalækkunarferli bankans. Kaupþing telur að Seðlabankinn lækki vexti í september og fari þeir þá í 14,5 prósent. Greining Glitnis er sama sinnis um upphaf lækkunarferlisins, en telur að vextir verði ekki komnir í 14,5 fyrr en í lok árs. Greiningardeild Landsbankans heldur að lækkunarferlið hefjist síðar, eða í nóvember og þá verði lækkað um 0,75 prósentustig og árið endi í 14,75 prósenta stýrivöxtum. Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildarinnar, áréttar hins vegar að spá þessi sé breytingum háð, og verði uppfærð eftir því sem fram komi vísbendingar í hagvísum. Sérfræðingar búast við aðgerðum ríkis og Seðlabanka sem stutt geti við gengi krónunnar. „Við eigum von á tvennu, stækkun gjaldeyrisforðans og skiptasamningum við erlendan seðlabanka,“ segir Edda Rós. Hún kveðst þó ekki búast við miklum yfirlýsingum um þessi mál á fundi Seðlabankans á morgun, enda kunni samningar um þessi mál að vera þyngri í vöfum en menn hafi almennt gert ráð fyrir.
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira