Viðskipti innlent

Lánshæfismatið á Glitni hrapar

Matsfyrirtækið Standard & Poor's (S&P) tilkynnti í dag að það hefði lækkað lánshæfiseinkunn sína á Glitni úr BBB+/A2 í CCC/C.

Ennfremur lækkar fyrirtækið einkunn sína á víkjandi skuldabréfum Glitnis í CC.

CCC einkunn þýðir samkvæmt skilgreiningu S&P m.a. að ekki sé líklegt viðkomandi geti staðið við skuldbindingar sínar ef á móti blási. C einkunn þýðir að viðkomandi sé kannski gjaldþrota en standi enn við skuldbindingar sínar.

Til samanburðar má geta þess að S&P gáfu bandaríska bankanum Washington Mutual einkunina CCC í síðasta mánuði er bankinn rambaði á barmi gjaldþrots.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×