Mesta lækkun sem hér hefur orðið á markaði Óli Kristján Ármannsson skrifar 18. mars 2008 06:00 Rýnt í stöðuna á markaði Miðlarar Kaupþings sjást hér fyrir nokkru fylgjast með þróun markaða. Í gær voru met slegin, bæði hvað varðar mestu lækkun á markaði og mestu veikingu krónunnar á einum degi. Fréttablaðið/Pjetur
Lækkun á hlutabréfamarkaði er orðin meiri en þegar netbólan brast. Áhættufælni fjárfesta á alþjóðavísu og dræmt aðgengi bankanna að erlendri mynt grefur undan gengi krónunnar. Hún hefur ekki fallið jafnskarpt áður á einum degi. Skyndilausn til styrktar krónunni er ekki í augsýn. Meiri gjaldeyrisforði myndi hjálpa Seðlabankanum að liðka til á peningamarkaði. Gengi krónunnar lækkaði um nálægt því sjö prósent í gær og hefur ekki fallið jafnmikið á einum degi frá því gengi hennar var gefið frjálst á markaði. Þá lækkuðu hlutabréf skarpt í gær og er lækkun frá hæsta gengi í sumar orðin meiri en lækkunin sem varð á markaði þegar netbólan sprakk árið 2000. Gengisfall hávaxtamynta um heim allan í gær er rakið til áhættufælni fjárfesta í kjölfar fregna af óförum bandaríska bankans Bear Stearns, en hann var seldur á „brunaútsöluverði“ eftir að hafa tapað miklu á undirmálslánum þar í landi. Þá eykur á vandann dræmt aðgengi íslenskra fjármálastofnana að erlendu lausafé. Þó svo að mikill vaxtamunur kunni að ýta undir viðskipti með krónubréf eru bankar ófúsir að láta erlenda mynt í staðinn fyrir krónur nema gegn afslætti. Því er minni hvati fyrir fjárfesta að standa í slíkum viðskiptum, sem að öðrum kosti hefðu stutt við gengi krónunnar. „Maður vonar auðvitað að þessu mikla umróti á alþjóðamörkuðum fari að linna,“ segir Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans. Hún segir þó erfitt að spá þar um. „Megi menn eiga von á fréttum á borð við þessar af Bear Stearns verður þetta erfitt áfram.“ Mestu máli hvað varðar framvindu hér heima segir hún hins vegar skipta hvaða skilaboð Seðlabanki Íslands sendi frá sér. „Stýrivextir eru bara ein hliðin á þessu. Það sem seðlabankar heims gera nú er að reyna að tryggja aðgang að lausafé, ekki bara í heimamynt heldur líka í erlendum myntum. Það var út af þessu sem seðlabankar G-10 landanna gerðu sín á milli gjaldeyrisskiptasamninga til að bankar í Ameríku hefðu aðgang að evrum og öfugt.“ Samninga sem þessa segir Edda Rós vera trúverðugustu leiðina til að tryggja aðgang banka að lausu fé í mynt annarra landa og kveður einsýnt að hér þurfi því að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. „Þarna myndi maður vilja sjá Seðlabankann virkari. Í þessu svakalega erfiða árferði á lánamörkuðum þarf okkar banki að vera mjög virkur og reyna að tryggja aðgang bankanna að, ekki bara innlendu fé, heldur erlendu líka,“ segir Edda Rós. Í viðtali við Útvarpið í gær sagði Davíð Oddsson seðlabankastjóri nauðsynlegt að fara varlega í því efnahagsárferði sem nú ríkti og kvað ljóst að horfur á vaxtalækkun hefðu versnað. Greiningardeild Glitnis sendi í gær frá sér spá þar sem gert er ráð fyrir óbreyttum stýrivöxtum í 13,75 þar til í júlí, en þá myndi Seðlabankinn hefja vaxtalækkunarferli. Greining Glitnis gerir ráð fyrir veikri krónu fram á sumar, en að hún taki að styrkjast í haust með bættum efnahagshorfum þjóðarbúsins.
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira