Kaupþing hægir ferðina að sinni Óli Kristján Ármannsson skrifar 1. febrúar 2008 06:00 á Kynningu Kaupþings Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri kynnti uppgjör bankans. Á fremsta bekk má sjá frá hægri Sigurð Einarsson, stjórnarformann bankans, Guðnýju Örnu Sveinsdóttur, framkvæmdastjóra fjármálasviðs, Guðna Aðalsteinsson, framkvæmdastjóra fjárstýringar, og Ingólf Helgason forstjóra Íslandsstarfsemi bankans. Fréttablaðið/Pjetur
Hagnaður hluthafa Kaupþings á árinu 2007 nemur 70.020 milljónum króna. Afkoman er tæpum 18 prósentum verri en árið áður þegar hagnaðurinn nam 85,3 milljörðum. Þynntur hagnaður á hlut (en þá hefur verið reiknað inn í útistandandi hlutafé, svo sem vegna samninga um kauprétt) fer úr 123,4 krónum á hlut árið 2006 í 93,3 krónur á nýliðnu ári. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings er engu að síður ánægður með uppgjörið, þrátt fyrir að viðsnúningur á fjármálamörkuðum hafi sett á það mark sitt. Hann segir 23,5 prósenta arðsemi eigin fjár á árinu vel viðunandi. Í kynningu á uppgjörinu í höfuðstöðvum Kaupþings við Borgartún í gær kom fram að Hreiðar Már telur sérstakt fagnaðarefni að innlán sem hlutfall af heildarútlánum til viðskiptavina jukust verulega á árinu, fóru úr 29,6 prósentum í byrjun árs í 41,8 prósent við lok árs. Hann segir að haldið verði áfram að auka hlutfall innlána í fjármögnun bankans, svo sem með eflingu og frekara landnámi innlánastarfsemi sem rekin er á netinu undir merkjum Kaupthing Edge. Hreiðar segir að í ljósi erfiðra aðstæðna á fjármálamörkuðum verði áhersla bankans fremur á innri vöxt en stækkun. Engu að síður hafi bankinn augun opin gagnvart tækifærum sem upp kunni að koma. Hann segir lausafjárstöðu bankans góða. Í vikunni féll Kaupþing frá yfirtöku á hollenska bankanum NIBC. Kaupþing á laust fé til að greiða útistandandi lán í 440 daga án þess að afla fjár á mörkuðum. Þá segir Hreiðar ýmsar leiðir í fjármögnun bankans til skoðunar. Í viðtali við Markaðinn staðfesti hann einnig að í gangi væru viðræður við fjárfesta í Katar um aðkomu þeirra að bankanum, en þar lægi ekki fyrir niðurstaða enn. Stjórn Kaupþings leggur til greiddur verði 14,8 milljarða króna arður vegna ársins 2007, eða sem jafngildi 20 krónum á hlut, eða 21 prósenti af hagnaði.
Mest lesið Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira