Þrýst á evruumræðu Óli Kristján Ármannsson skrifar 30. janúar 2008 06:00 Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, segist lengi vel hafa verið hallur undir að taka hér einhliða upp evru Markaðurinn/Anton „
Í þessu endurspeglast sá sannleikur að einhliða upptaka evrumyntar skiptir engu máli. Það sem mestu máli skiptir fyrir fjármálafyrirtækin er bakhjarlinn,“ segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra um nýja umfjöllun matsfyrirtækisins Moody‘s um lánshæfi ríkisins. Í umfjöllun Moody‘s er á það bent að umsvif íslensku viðskiptabankanna utan landsteinanna séu orðið það mikil að þau gætu þrýst á lægri lánshæfiseinkunn ríkisins. Lægri einkunn myndi rýra kjör ríkisins við erlendar lántökur. Björgvin segir þetta þó fremur sett fram sem umhugsunarefni í umfjöllun Moody‘s en stórt vandamál. „Íslenska ríkið er ágætlega í stakk búið til að takast á við þrengingar. En auðvitað blasir við að áframhaldandi vöxtur bankanna erlendis mun hafa áhrif á stöðuna. Í framhaldinu vakna spurningar um hvaða kostir eru í stöðunni.“ Kostina segir hann allnokkra, svo sem einhliða tengingu við evru, myntráð, einhliða upptöku evru eða aðild að Myntbandalagi Evrópu. „Alþjóðavæðing bankakerfisins gerir að verkum að íslenskt fjármálakerfi er miklu háðara sveiflum á alþjóðamarkaði en áður og við bætast gríðarleg umsvif bankanna erlendis,“ segir viðskiptaráðherra og telur skýrslu Moody‘s undirstrika mikilvægi þess að fara mjög vandlega yfir málin. Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, tekur í svipaðan streng. „Ég held að það fyrirkomulag sem við höfum haft, að vera með sérmynt, á því sem ég held að sé minnsta myntsvæði í heimi, hafi gagnast okkur mjög vel á þeim tíma sem sjávarútvegur var hér langmikilvægasta atvinnugreinin. Hann er raunar enn mikilvæg atvinnugrein, en núna þarf að horfa til fleiri atvinnuvega, þar með talið fjármálakerfisins. Ég tel okkur betur borgið með einhverju öðru kerfi, en hvað það á nákvæmlega að vera er erfiðara að segja.“ Sigurjón segist lengi vel hafa verið hallur undir að taka hér einhliða upp evru. „En nú í seinni tíð hef ég hallast að því að skoða þyrfti hvort ekki ætti að ganga heldur lengra og verða raunverulegur partur af evrukerfinu. En spurningin er flókin og erfitt að segja hvaða leið er best út frá hagsmunum þjóðfélagsins,“ segir hann. Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, hefur margsagt krónuna vera of litla mynteiningu. „En hún verður ekkert látin hverfa í snatri á einum til tveimur dögum, eða mánuðum. Samt er alveg ljóst að mínu mati að krónan er ekki framtíðargjaldmiðill,“ segir hann. Helsta punkt Moody’s segir Sigurður hins vegar vera að arðsemi bankanna sé lykilatriði fyrir lánshæfismat þjóðarinnar. „Á það held ég að menn ættu að horfa.“
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira