Fyrrum vistmenn njóta aðstoðar 2. mars 2007 00:15 Bjarni Össurarson yfirlæknirinn á vímuefnadeild segir rúmlega tíu manns úr Byrginu hafa beðið um hjálp.
Allstórir hópar fyrrverandi vistmanna Breiðavíkurheimilisins annars vegar og Byrgisins hins vegar hafa leitað aðstoðar hjá Landspítala - háskólasjúkrahúsi frá því að þjónustu fyrir fólkið var hleypt af stokkunum. Hún er í höndum fagaðila, sem ræða við fólkið og leggja línur fyrir áframhaldandi aðstoð við það innan heilbrigðiskerfisins. Bjarni Össurarson, yfirlæknir á vímuefnadeild LSH, segir að rúmlega tíu manna hópur fyrrverandi vistmanna í Byrginu hafi leitað til deildarinnar. „Við tökum upplýsingar frá öllum þeim sem til okkar leita og hafa verið í Byrginu. Þess ber að geta að ekki nærri allir í þessum hópi eru konur sem hafa verið misnotaðar. Við leggjum hvað mesta áherslu á að aðstoða þær,“ segir Bjarni. Hann bætir við að rætt sé við fólkið og bráðavandi þess metinn, hvort það þurfi aðstoð félagsfræðinga, hjúkrunarfræðinga eða lækna eða afeitrun á deild. Þá sé verið að finna farveg fyrir frekari sálfræðiaðstoð, einkum handa konunum sem hafi orðið fyrir misnotkun. Jón F. Sigurðsson, yfirsálfræðingur á geðdeild LSH, sem leiðir teymið er tekur á móti fólkinu sem dvaldi í Breiðavík, segir að allstór hópur hafi leitað sér aðstoðar. „Það er reynt að bregðast eins fljótt við og auðið er og með eins góðum úrræðum og auðið er,“ segir hann. „Mennirnir koma úr ýmsum áttum, en það eru greinilega fagaðilar úti á landbyggðinni sem sinna þeim líka, auk þess sem félagsmálayfirvöld hafa tekið málið föstum tökum.“ Símanúmer sem fólkið getur beðið um aðstoð í er 543 4074 virka daga milli klukkan 9 og 16 fyrir 31. mars næstkomandi.
Mest lesið Stúlka í sjóinn við Reynisfjöru Innlent Stóra tjaldið fellt og hætt við brennuna vegna óveðurs Innlent Stúlka flutt á sjúkrahús eftir fall í sjóinn við Reynisfjöru Innlent „Það var töluvert verra veður en spáin sagði“ Innlent Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum Erlent „Varla gangfær“ og „skulfu eins og hríslur“ Innlent „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Erlent Herjólfur siglir ekki meira í dag Innlent Klíndu límmiðum á Ormsson sem versla ekki einu sinni við Rapyd Innlent „Manneskja sem er komin á þetta plan hlýtur að vera rökþrota“ Innlent Fleiri fréttir Stúlkan sem fór í sjóinn er látin Aldrei upplifað annað eins: „Það eru öll stígvél á þessari eyju uppseld“ Stígvélaskortur í Eyjum og brekkusöngur í Kópavogi Þjóðhátíðarbrennunni frestað til sunnudags Stúlka flutt á sjúkrahús eftir fall í sjóinn við Reynisfjöru Herjólfur siglir ekki meira í dag Stúlka í sjóinn við Reynisfjöru „Varla gangfær“ og „skulfu eins og hríslur“ Verbúðarstemning á Hjalteyri og nóg af ástarpungum fyrir alla Mannmergð vildi sjá fyrsta konunglega breska gestinn Óveður í Eyjum og verbúðarstemning á Hjalteyri Hnífurinn reyndist grilltangir „Það var töluvert verra veður en spáin sagði“ Hávaðarok á Snæfellsnesi og Faxaflóa Læti í miðbænum og í veðrinu Stóra tjaldið fellt og hætt við brennuna vegna óveðurs Þjóðhátíðargestum hleypt inn í Herjólfshöll meðan veðrið gengur yfir Klíndu límmiðum á Ormsson sem versla ekki einu sinni við Rapyd Opnun Samverks á Hellu fagnað „Manneskja sem er komin á þetta plan hlýtur að vera rökþrota“ Þjóðarpúls Gallups: Kristrún og Þorgerður gætu myndað meirihluta án Flokks fólksins „Ég upplifi þetta sem mikinn yfirgang og ofbeldi“ Íbúar við Þjórsá æfir og þrumuveður um Versló Handtekinn með reipi um hálsinn eftir ofsaakstur á flugbraut undir áhrifum fíkniefna Búast við þrumuveðri og vatnavöxtum Ný verðskrá kindakjöts vonbrigði fyrir sauðfjárbændur Sagði foreldrana líklega hafa dottið í aðdraganda andlátsins Fjölskyldufaðir stunginn meðan sonurinn horfði á Fundu engan hvítabjörn Hraunbreiðan þykknar og líkur á framhlaupum aukast Sjá meira