Innlent

Stórbrunar í Kvosinni í tímans rás

Stórbruni í Lækjargötu Árið 1967 brunnu þrjú hús við Lækjargötu.
Stórbruni í Lækjargötu Árið 1967 brunnu þrjú hús við Lækjargötu.
Húsinu bjargað. Slökkviliðsmönnum tókst að bjarga húsinu við Lækjargötu 2 þegar kviknaði í því síðast.
1915 Stærsti bruni í sögu Reykjavíkur varð í apríl 1915. Alls brunnu tíu hús við Hafnarstræti og Austurstræti til kaldra kola auk þess sem fjölmörg hús skemmdust. Tveir menn létu lífið í brunanum. Eftir brunann voru settar strangari reglur um byggingu húsa og meðal annars var bannað að byggja samfelldar timburhúsaraðir.

1944 Hótel Ísland við Austurstræti 2 brennur til kaldra kola.

1967 Sautján íbúar við Lækjargötu misstu heimili sín þegar þrjú timburhús brunnu til grunna. Hús Iðnaðarbankans við Lækjargötu 12 skemmdist verulega.

1977 Nokkur hús í Bernhöftstorfunni skemmast í bruna.

1986 Þak og ris hússins við Lækjargötu 14 stórskemmist í eldsvoða.

1998 Nýja bíó sem stóð við Austurstræti 22b (á lóðinni þar sem Iðu-húsið stendur nú) brennur til grunna. Einn slökkviliðsmaður var hætt kominn í brunanum og húsið við Lækjargötu 2 (sem brann í gær) var í hættu. Ári áður, 1997, kom einnig upp eldur í húsinu en eigandi hússins náði að slökkva eldinn sjálfur áður en illa fór.

2004 Eldur kom upp á veitingastaðnum Kebab-húsinu við Lækjargötu 2 (sem brann í gær). Slökkviliðinu tókst að bjarga húsinu og þótti það mikil mildi. Húsið skemmdist nokkuð í brunanum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×