Körfubolti

Vince Carter gerir nýjan samning við Nets

Carter hefur gert samning við Nets til fjögurra ára.
Carter hefur gert samning við Nets til fjögurra ára. Mynd/ AFP
New Jersey Nets samdi í dag við bakvörðinn Vince Carter. Samningurinn nær til að minnsta kosti fjögurra tímabila í viðbót.

 

 

Carter fær sem nemur tæpum 3,6 milljörðum íslenskra króna fyrir sinn snúð. Einnig fær hann vilyrði fyrir framhaldi í eitt tímabil til viðbótar. Það gæti fært honum 840 milljónir aukalega.

Miklar vangaveltur hafa verið um framtíð Carters hjá Nets að undanförnu. Liðið var með 50% vinningshlutfall á síðasta tímabili. Nes Jersey Nets datt út í annarri umferð úrslitakeppninnar eftir ósigur gegn Cleveland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×