Níu leikir fóru fram í nótt Elvar Geir Magnússon skrifar 23. desember 2007 11:13 Tim Duncan skoraði 34 stig í nótt.
Meistararnir í San Antonio Spurs unnu í nótt sigur á LA Clippers í NBA deildinni í körfubolta. Alls fóru fram níu leikir í deildinni í nótt. Indiana vann Washington 93-85 þar sem Danny Granger skoraði 25 stig fyrir heimamenn. Miami vann nauman sigur á Utah 104-102 en eins og oft áður var Dwyane Wade stigahæstur í liði Miami, Wade skoraði alls tuttugu stig og var hetja liðsins með því að skora sigurkörfuna. Richard Jefferson skoraði 31 stig fyrir New Jersey sem vann Golden State með fimm stiga mun 100-95. New Orleans vann Minnesota 110-76 og Philadelphia gerði góða ferð til Memphis og vann 99-97 sigur. 31 stig hjá Gasol dugðu ekki til sigurs en Andre Miller gerði 29 stig fyrir Philadelphia. Houston bar sigurorð af Chicago 116-98. Milwaukee vann Charlotte 103-99 þar sem hinn kínverski Yi Jianlian átti mjög góðan leik og skoraði 29 stig. Jianlian er nýliði hjá Milwaukee. Tim Duncan skoraði 34 stig fyrir San Antonio sem vann LA Clippers 99-90. Tony Parker spilaði fyrir San Antonio í leiknum en hann hefur verið meiddur að undanförnu. Þá vann Phoenix 122-103 sigur á Toronto. Chris Bosh skoraði 42 stig fyrir Toronto en það gaf lítið. Leandro Barbosa var stigahæstur í liði Phoenix með 31 stig.
Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira