Óskemmtileg lífsreynsla, segir eigandi Litlu Kaffistofunnar 22. desember 2007 10:32 "
Það er óhætt að segja að þetta hafi verið óskemmtileg lífsreynsla," segir Stefán Þormar Guðmundsson eigandi Litlu kaffistofunnar. Par vopnað hnífi og hafnarboltakylfu reyndi að ræna staðinn í morgun. "Það fyrsta sem ég varð var við er konan sem kom hettuklædd og með klút fyrir andlitinu að mér baka til í stofunni," segir Stefán Þormar. "Hún muldraði eitthvað um leið og hún otaði að mér hníf." Stefán segir að hann hafi ekki skilið hvað konan var að segja í fyrstu en loks áttaði hann sig á því að hún sagði að vopnað rán væri í gangi. "Ég brá á það ráð að ná í stunguskólfu til að verjast konunni," segir Stefán Þormar. "Við það barst leikurinn fram í stofuna þar sem karlmaður á þrítugsaldri kom að mér með hafnarboltaklyfu á lofti og sló til mín." Stefán segir að hann hafi getað vikið undan högginu sem lenti á peningakassa staðarins með þeim afleiðingum að hann splundraðist niður á gólf og þá tókst konunni að hrifsa skiptimyntina úr honum. Vitorðsmaður hennar reyndi á meðan að slá Stefán í annað sinn en hitti ekki. Það högg fór hinsvegar í tölvu staðarins og braut hana. Stefán Þormar segir að þegar hér hafi verið komið sögu var kona hans búin að hringja á lögregluna og dóttir hans búin að setja öryggiskerfi staðarins í gang. "Við þetta flýja þau út og keyra á brott með miklum hraða," segir Stefán. "Einn af fastakúnnum mínum var í kaffi og hann hljóp út á eftir þeim til að ná niður bílnúmerinu. Síðan ætlaði hann sér að elta þau en þau höfðu þá stolið bíllyklunum sem voru í bílnum." Skömmu síðar kom lögreglan á staðinn og náði parinu við á gangi við Lögbergsbrekku.
Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Sjá meira