Verðmæti brottkasts á þorski og ýsu 700 milljónir kr. á ári 18. desember 2007 14:30
Verðmæti brottkasts á þorski og ýsu á síðustu árum nam um 700 milljónum kr. að meðaltali á ári. Þetta kemur m.a. fram í nýju riti Hafrannsóknarstofunnar um brottkastið. Ef tekið er tímabilið frá 2001 til 2006 nemur verðmæti þorsks og ýsu sem hent var yfir fjórum milljörðum kr. Í greininni er lýst helstu niðurstöðum mælinga á brottkasti botnfiska, sem fram fóru árið 2006. Mælingar á brottkasti beindust einkum að þorsk- og ýsuveiðum í helstu veiðarfæri, en einnig að ufsa og gullkarfa í botnvörpuveiðum og skarkola í dragnótaveiðum. Mælingar á öðrum tegundum voru ekki nægilega umfangsmiklar til að meta brottkast með viðunandi hætti. Brottkast þorsks var 2754 tonn eða 1.45% af lönduðum afla, og er það næst hæsta gildi tímabilsins 2001-2006. Miðað að við leiguverð á þorskkílóinu sé 220 kr. var þorsk fyrir 600 milljónir hent aftur í sjóinn í fyrra. Brottkast ýsu var 2452 tonn eða 2.60% af lönduðum afla, eða um helmingur brottkastsins árið 2005, og nokkru minna en meðalbrottkast 2001-2006. Miðað að við leiguverð á ýsukílóinu sé 40 kr. var ýsu fyrir rétt tæpar 100 milljónir kr. hent aftur í sjóinn þetta ár. Árlegt meðalbrottkast þorsks tímabilið 2001-2006 var 2192 tonn eða 1.11%. Meðalbrottkast ýsu var 2759 tonn eða 4.12%. Samanlagt brottkast þorsks og ýsu var 5206 tonn árið 2006, en að jafnaði 4951 tonn 2001-2006, eða 1.83% af lönduðum afla þessara tegunda. Ef verðmætið er framreiknað miðað við fyrrgreind leiguverð hefur þorski og ýsu fyrir yfir fjóra milljarða kr. verið hent í sjóinn. Í fiskum talið var brottkast þorsks 2001-2006 um 1.9 millj. fiska að jafnaði eða 2.88% af meðalfjölda landaðra fiska, en brottkast ýsu var um 4.3 millj. fiska eða 9.23%. Samanlagt brottkast þessara tegunda var því um 6.2 millj. fiska á ári að jafnaði 2001-2006.
Mest lesið Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu Innlent Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Innlent Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Innlent Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Innlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Innlent Fleiri fréttir Flutti tæp þrjú kíló af kókaíni til landsins og fær tvö ár Ætlar ekki að þegja til að láta fordómafullu fólki líða betur Strandveiðar færast frá Viðreisn til Flokks fólksins Myndir: Flugu til Þórsmerkur og Grindavíkur Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu „Annars lítur þetta ekki mjög vel út fyrir þær“ „Sýnið nú kjark og dug og gerið þetta almennilega“ Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Staðan á gosinu og óánægja með lokanir í Grindavík Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Landlæknir hlynnt því að banna ljósabekki Loftgæði mælast óholl á Akureyri Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Sjá meira