Telur að Þróunarfélagi hafi verið heimilt skv. lögum að selja eignir 21. nóvember 2007 17:05 Mangús Gunnarsson, stjórnarformaður Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar. MYND/GVA
Stjórnarformaður Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar segir að félaginu sé heimilt samkvæmt lögum að selja fasteignir á Keflavíkurflugvelli og að það hafi verið gert að undangegnum auglýsingum. Um 80 prósent af fasteignum á svæðinu hafa þegar verið seld fyrir rúmlega 15 milljarða króna. Atli Gíslason, þingmaður Vinstri - grænna, hefur gagnrýnt harðlega hvernig staðið var að sölu á nærri 1.700 íbúðum á gamla varnarsvæðinu til félagsins Háskólavalla fyrir 14 milljarða króna. Að félaginu standa fimm fyrirtæki, Glitnir, Fasteignafélagið Þrek, Sparisjóður Keflavíkur, Klasi og Teigur. Hefur Atli gagnrýnt að ekki hafi verið farið að lögum og reglum um gagnsætt og opið útboð og að það hefði átt að auglýsa eignirnar til sölu á Evrópska efnahagssvæðinu. Magnús Guðmundsson, formaður stjórnar Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, hafnar því að lög hafi verið brotin. Hann vísar í lög sem samþykkt voru á Alþingi í fyrra og þjónustusamning milli Þróunarfélagsins og ríkisins þar sem Þróunarfélaginu hafi verið falið koma eignum á fyrrum varnarsvæðinu í borgaralega nýtingu. Í því hafi falist heimild til að selja fasteignirnar. Þá segir hann forsvarsmenn Þróunarfélagsins hafa margauglýst eignir á svæðinu til sölu, bæði í blöðum og á heimasíðu Þróunarfélagsins. „Okkur var falið að selja eignirnar þannig að þær drægju að bæði fólk og starfsemi á svæðið en eignirnar hafa verið seldar með ýmsum kvöðum," segir Magnús og vísar meðal annars til þess að Háskólavöllum sé óheimilt að selja eignir sínar á Keflavíkurflugvelli næstu fjögur árin. Óraunhæft að bera saman verð í Keflavík og á vellinum Aðspurður segir Magnús að búið sé að selja um 80 prósent eignanna sem ætlunin er að selja á gamla varnarsvæðinu. Fyrstu eignirnar voru seldar til félagsins BASE undir svokallaða Tæknivelli og greiddi BASE 715 milljónir fyrir 22 byggingar. Þá var Keili, sem hyggst byggja upp háskóla á svæðinu, seldar tvær byggingar fyrir 320 milljónir. Háskólavöllum voru svo seldar um 1.660 íbúðir á 14 milljarða króna og Þjóðkirkjunni voru seldar fjórar eignir á 155 milljónir króna. Samtals gerir þetta nærri 15,2 milljarða króna.Bent var á í fréttum Stöðvar 2 í gær að markaðsvirði þeirra eigna sem Háskólavellir keyptu, miðað við við fermetraverð í Reykjanesbæ, væri 29,5 milljarðar króna. Það er tvöföld sú upphæð sem félagið greiddi fyrir eignirnar. Magnús segir óraunhæft að bera saman verð í Keflavík og á varnarsvæðinu. Í tilviki Þróunarfélagsins sé verið að selja margar eignir í einu og þá séu ýmsar kvaðir sem fylgi kaupsamningunum. „Svo þarf að gera við margar íbúðanna og endurnýja rafmagn," segir Magnús og bendir á að inni í samningi Háskólavalla séu íbúðir sem skemmdust í miklum forstakafla síðastliðinn vetur.Aðspuður hverr hafi eftirlit með sölu eignanna á varnarsvæðinu segir Magnús að fjármálaráðuneytið og Ríkisendurskoðun sinni því. „Ríkisendurskoðun hefur verið að fara yfir okkar mál og skoðað hluti að okkar frumkvæði," segir Magnús.
Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Barist á hafi úti Erlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Ég sé engin rök fyrir því“ Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Sjá meira