Erlent

Mills missir sig

Guðjón Helgason skrifar
Fyrirsætan fyrrverandi Heather Mills óttast um líf sitt og segist fá verri umfjöllun í fjölmiðlum en barnaníðingar. Mills stendur í ljótum skilnaði við Bítilinn Paul McCartney og hefur hafið sjarmasókn í sjónvarpi beggja vegna Atlantshafsins.

Skilnaðarmál Mills og McCartney er nú fyrir breskum dómstólum. Þau eiga eitt barn, dótturina Beatrice sem er þriggja ára. Mills vill fá helming af eigum McCartneys og gætu það orðið hæstu skilnaðarbætur í sögu Bretlands. Mills hefur fengið það óþvegið í umfjöllunum um málið og taldi sig því þurfa að rétta sinn hlut og skýra sitt mál - en hún hefur ekki viljað tjá sig opinberlega hingað til.

Mills hóf baráttuna í bresku sjónvarpi á miðvikudaginn þegar hún kom fram í morgunþætti sjónvarpsstöðvarinna ITV. Þar sagðist hún óttast um líf sitt - hún hefði verið rægð rækilega í bresku pressunni og ætlaði að leita réttar síns vegna þess. Hún sagðist hafa fengið verri umfjöllun en barnaníðingar og morðingjar og það þrátt fyrir að hún hefði unnið að góðgerðarmálum í tvo áratugi. Hún líkti raunum sínum við þá umfjöllun sem þær Díana Prinessa og Kate McCann - móðir Madelein litlu sem hvarf í Portúgal fyrr á árinu - hefðu fengið.

Breska pressan brást hart við og spurði hvernig hún dirfðist að líkja sér við móður Madeleine. Fyrsta sjarmasókn Mills því misheppnuð.

Þá var komið að viðtölum í bandarísku sjónvarpi. Í viðtali við sjónvarpsstöðina Extra réðs hún á Stellu - dóttur Pauls og sagði hana hafa komið afar illa fram við sig - sagt hana gullgrafara af verstu sort sem vildi aðeins næla sér í peninga pabba. Hún hafi leitað stuðning eiginmannsins en ekki fengið hann.

Mills segist hafa safnað saman öllum upplýsingum um McCartney fjölskylduna og þær geymi hún í öryggishólfi. Þangað skuli leita ef hún verði fyrir óhappi eða týni lífi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×