Innlent

Fundu töluvert fíkniefnamagn á Selfossi

Helga Arnardóttir skrifar
Mikið annríki var hjá lögreglu á Selfossi í nótt.
Mikið annríki var hjá lögreglu á Selfossi í nótt.

Mikill erill var hjá lögreglunni á Selfossi í nótt. Sex voru handteknir við húsleit lögreglu í heimahúsi á Selfossi um þrjú leytið. Þar fannst töluvert af fíkniefnum og gistu allir fangageymslur í nótt. Þeir verða yfirheyrðir í dag. Að sögn lögreglu eru hinir handteknu allir á tvítugs-og þrítugsaldri.

Þá gerði lögreglan húsleit í heimahúsi á Þorlákshöfn í morgunsárið þar sem einnig fundust fíkniefni. Enginn var handtekinn. Á báðum stöðum voru samkvæmi haldin langt fram eftir nóttu og segir lögregan að lagt hafi verið hald á hvítt efni, ætlað amfetamín.

Þá var maður sleginn með glasi eða flösku fyrir utan skemmtistaðinn Kríuna rétt fyrir utan Selfoss rétt fyrir klukkan þrjú í nótt. Hann hlaut minniháttar meiðsl og var farið með hann á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Rétt eftir klukkan þrjú var lögreglu tilkynnt um hópslagsmál fyrir utan sama skemmtistað en þau leystust upp þegar lögregla kom á vettvang.

Þá voru tveir teknir grunaðir um að aka undir áhrifum fíkniefna og var annar sviptur ökuréttindum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×