Innlent

Ellefu gistu fangageymslur í Reykjavík

Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Ellefu gistu fangageymslur vegna ölvunar og sjö manns voru teknir fyrir brot á lögreglusamþykkt. Þrír voru teknir fyrir ölvunarakstur. Þá var talsvert um útköll hjá lögreglunni á Suðurnesjum í nótt vegna ölvunar og óspekta en mikil sýnileg ölvun var í miðbænum þar í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×