Innlent

Sjúkraflugvél staðsett á Ísafirði yfir vetramánuðina

Ísafjörður
Ísafjörður MYND/HS

Sjúkraflugvél verður staðsett á Ísafirði yfir vetramánuðina samkvæmt ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðis- og tryggingmálaráðherra. Hefur hann falið embættismönnum að gera viðbótarsamning við flugrekandann sem sinnir sjúkraflugi á svæðinu vegna þessa.

Þá kemur einnig fram í tilkynningu ráðuneytisins að þegar hafi verið haft samband við forsvarsmenn Mýflugs og eru vonir bundnar við að sjúkraflugvélin verði staðsett á Ísafjarðarflugvelli um miðjan mánuðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×