Lúkasar minnst með kertavökum í kvöld 28. júní 2007 12:58 Talið er að fimm ungir menn hafi drepið hundinn Lúkas. MYND/Tekin af hundaspjall.is
Kertavaka til minningar um hund sem var drepinn með hrottalegum hætti á Akureyri á dögunum verður haldin í Reykjavík og Akureyri í kvöld. Miklar umræður hafa spunnist á Netinu vegna málsins en þar er því haldið fram að ungir drengir hafi sett hundinn ofan í íþróttatösku og sparkað töskunni á milli sín þar til hann var allur. Fyrstu fréttir hermdu að verknaðurinn hefði hafa náðst á öryggismyndavél í bænum. Heimildir Vísis herma að svo hafi ekki verið en hins vegar hafi nokkur vitni að atburðinum þegar gefið sig fram við lögreglu. Eigandi hundsins hefur kært verknaðinn til lögreglu. Enn sem komið er hefur Lögreglan á Akureyri engar upplýsingar gefið um málið en hún staðfestir þó að málið sé í rannsókn. Forsaga málsins er sú að hundurinn Lúkas, sem var af Chinese Crested kyni, slapp frá eiganda sínum á Akureyri þann 28. maí síðastliðinn. Eigendur leituðu hundsins án árangurs í marga daga en á Bíladögum á Akureyri helgina 15. til 17. júní sást til fimm ungra manna með hundinn. Ekki náðist í mennina en sagan segir að á laugardeginum hafi þeir sett hundinn ofan í íþróttatösku og sparkað í hann þar til hann var allur. Hræið af hundinum hefur enn ekki fundist. Minningarvökur um hundinn Lúkas verða haldnar á Geirsnefi í Reykjavík, hjá Blómavali á Akureyri og í Sandvík á Vopnafirði klukkan átta í kvöld.
Lúkasarmálið Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira