Sprengdi upp bakarí 29. janúar 2007 18:27
Samtökin Heilagt stríð og al-Aqsa-herdeildirnar hafa bæði lýst yfir ábyrgð á sjálfsmorðsárás sem framin var í bænum Eilat í Ísrael í dag. Fjórir létu lífið í tilræðinu, sem er það fyrsta í landinu í níu mánuði. Rauðahafsbærinn Eilat hefur hingað til sloppið við átök Ísraela og Palestínumanna, þar til í morgun þegar maður gyrtur sprengjubelti gekk inn í bakarí og sprengdi sig og þrjá aðra í loft upp. Sprengingin var svo öflug að líkamsleifar fórnarlambanna þeyttust út á götu. Samtökin Heilagt stríð og al-Aqsa-herdeildirnar lýstu strax ábyrgð á tilræðinu og sögðu það framið til að þjappa Palestínumönnum saman gegn Ísraelum í stað þess að þeir berðust hverjir við aðra. Tilræðismaðurinn var 21 árs að aldri og kom frá Gaza-ströndinni. Vinir hans og ættingjar hittust fyrir utan heimili hans í dag og lofuðu árásina.Ísraelsk stjórnvöld fordæmdu tilræðið í dag og sögðu að með því væri vopnahléinu sem ríkt hefur á Gaza síðastliðna tvo mánuði stefnt í hættu. Ehud Olmert forsætisráðherra hét því að herða öryggisráðstafanir en stillti sig þó um að segja að árásarinnar yrði hefnt.Þetta er fyrsta sjálfsmorðsárásin í Ísrael í níu mánuði en í apríl í fyrra stóð Heilagt stríð fyrir hermdarverki í Tel Aviv sem kostaði 11 mannslíf.
Erlent Fréttir Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Sjá meira