Einar Hólmgeirsson missir af HM 2. janúar 2007 15:07 Einar Hólmgeirsson verður ekki með íslenska landsliðinu á HM síðar í þessum mánuði NordicPhotos/GettyImages
Stórskyttan Einar Hólmgeirsson hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Grosswallstadt verður ekki með íslenska landsliðinu í handknattleik á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi síðar í þessum mánuði. Einar er með slitið liðband í þumalfingri og verður frá í þrjá mánuði. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir íslenska landsliðið en Einar Hólmgeirsson er einn af allra bestu sóknarmönnum liðsins. Einar meiddist 30.desember síðastliðinn í leik gegn Kiel. Hann var að reyna skot og fékk varnarmann Kiel á vinstri þumalfingur sinn en atvikið átti sér stað undir lok fyrri háflleiks og var Einar búinn að skora fjögur mörk í leiknum. Einar hefur verið afskaplega óheppin með meiðsli en hann rotaðist gegn Króötum á síðasta Evrópumóti og lék ekkert meira með á mótinu og þá missti hann einnig af leikjum á síðasta heimsmeistaramóti í Túnis. Einar fer í aðgerð næstu daga og verður væntanlega klár í slaginn eftir tíu til tólf vikur. Einar leikur á næsta tímabili með stórliði Flensburg en hann gerði við þá þriggja ára samning fyrir áramót. Íslenska landsliðinu er vandi á höndum því Ólafur Stefánsson á enn við meiðsli að stríða í öxl og ólíklegt er að hann verði með liðinu í æfingaleikjum sem framundan eru fyrir heimsmeistaramótið. Hörður Magnússon greindi frá þessu í hádegisfréttum Stöðvar 2 en rætt verður við Einar í kvöldfréttum.
Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Íslenski boltinn Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira