Íslenski draumurinn úti 30. janúar 2007 20:57
Danir sigruðu með marki á lokasekúndu framlengingar í átta liða úrslitum á HM í handbolta, lokastaðan 42-41 fyrir Dönum. Íslendingar voru með pálmann í höndunum þegar um hálf mínúta var eftir, staðan jöfn og Íslendingar með boltann en glopruðu tækifærinu og því fór sem fór. Íslendingar leika því um 5-8 sætið á HM. Þar mætir liðið Rússum í leik sem ræður því hvort þeir leika um 5. sætið eða 8. sætið. Danir hinsvegar hafa bókað sætið í undanúrslitunum þar sem þeir mæta Pólverjum. Leikirnir fara fram á fimmtudag. Íslenska liðið leiddi í hálfleik eftir að hafa verið mest þremur mörkum yfir. Í seinni hálfleik seig hinsvegar á ógæfuhliðina og átti liðið slæman kafla í fyrri hluta hálfleiksins og voru mest fjórum mörkum undir. Íslendingarnir komu til baka á síðustu tíu mínútum hálfleiksins með Snorra Stein Guðjónsson fremstan í flokki. Snorri Steinn skoraði fjögur síðustu mörk liðsins og þar á meðal jöfnunarmarkið úr víti þegar fjórar sekúndur voru eftir af venjulegum leiktíma. Snorri Steinn var fremstur meðal jafningja á vellinum í kvöldGetty Images Íslendingar náðu að komast yfir í fyrri hluta framlengingar og höfðu tækifæri til að komast tveimur mörkum yfir þegar Logi Geirsson kastaði boltanum klaufalega í hendurnar á Dananum Sören Stryger og því var staðan jöfn í hálfleik framlengingarinnar í stað þess að Íslendingar væru tveimur mörkum yfir. Íslendingar fengu aftur tækifæri til að gera út um leikinn á lokasekúndum leiksins, en þeir héldu í sókn þegar hálf mínúta var eftir og staðan jöfn. En í stað þess að tryggja sér sigur átti Alexander Petersson misheppnað skot og Danir fengu að eiga lokaorðið í leiknum. Lars Möller Madssen nýtti tækifærið vel fyrir Dani og skoraði sigurmarkið um leið og leiktíminn rann út. Íslendingar léku vel í sókninni með Snorra Stein fremstan í flokki en vörnin og markvarslan brugðust í leiknum og skyttur danska liðsins skoruðu að vild fyrir utan en Michael Knudsen og Anders Oechsler skoruðu níu mörk hvor. Markaskorarar Íslands: Snorri Steinn Guðjónsson 15 Alexander Petersson 3 Ólafur Stefánsson 6 Logi Geirsson 6 Guðjón Valur Sigurðsson 5 Róbert Gunnarsson 4 Sigfús Sigurðsson 1 Ásgeir Örn Hallgrímsson 1 Jesper Jensen og Lasse Boesen fagnaGetty ImagesKasper Hvidt markvörður Dana átti góðan leikGetty ImagesSnorri Steinn og Róbert svekktir í leikslokGetty ImagesStrákarnir okkar að vonum súrirGetty ImagesUlrik Wilbek þjálfari Dana hafði ástæðu til að fagnaGetty Images
Mest lesið Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Körfubolti Standa með Eygló í martröðinni Sport Týndur í fjórtán daga Fótbolti Howe hættur hjá Newcastle Enski boltinn Fljótasti hvíti maður sögunnar Sport Enska deildin mótmælir ákvörðunum Infantino Fótbolti Fifa gefur út hvað Argentína er rannsakað fyrir eftir heimsmeistaramótið Fótbolti Val milli grunngilda hreyfingarinnar og gylliboðs Infantino Fótbolti Kristján Flóki fékk tveggja leikja bann fyrir að traðka á Ívari Íslenski boltinn Bavíanar í Bandaríkjunum vilja græða peninga Sport Fleiri fréttir Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Sjá meira