Sigaði hundi á lögregluna 19. júní 2007 06:30 Kannabis á Hverfisgötu
Kalla þurfti út aukalið lögreglumanna frá Reykjavík og Selfossi, þegar kannabisræktun var gerð upptæk í Þykkvabænum á föstudagskvöld. Þremur Doberman hundum var sigað á lögregluna sem var á staðnum og beit einn þeirra lögreglumann. Á föstudagskvöld var haldinn dansleikur í héraðinu og fékk lögreglan á Hvolsvelli lögreglumenn frá fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til að aðstoða við hefðbundið eftirlit. Jafnframt var ákveðið að skyggnast um eftir marijúanaræktun á bæ í Þykkvabæ, en lögreglunni á Hvolsvelli höfðu borist ábendingar um að slíkt kynni að vera í gangi. Þegar lögreglumenn frá Hvolsvelli og fíkniefnadeildinni komu á vettvang var þar fyrir einn maður með þrjá hunda. Hann sigaði þeim umsvifalaust á lögreglumennina með þeim afleiðingum, að einn hundanna beit einn lögreglumanninn í lærið. Lögreglumaðurinn slapp þó við meiri háttar meiðsl. Þegar þessi staða var komin upp var kallað á liðsauka frá lögreglunni á Selfossi. Þá voru lögreglumenn úr sérsveit Ríkislögreglustjóra kallaðir á staðinn. Jafnframt var fengin heimild til húsleitar. Samtals 52 kannabisgræðlingar fundust, sem voru ræktaðir í þar til gerðum geymsluhólfum við bæinn. Maðurinn, sem beitti hundunum á lögregluna, var gestkomandi á bænum og var hann einn heima þegar lögregluna bar upphaflega að. Eftir að liðsauki hafði borist kom annar maður akandi að bænum, en hann mun vera húsráðandi þar og góðkunningi lögreglu. Mennirnir voru báðir handteknir, en þeir látnir lausir að loknum yfirheyrslum. Húsráðandi var grunaður um akstur undir áhrifum lyfja, auk þess sem hann hefur játað að eiga kannabisplönturnar. Samtals voru að störfum þarna níu lögreglumenn frá fjórum embættum þegar mest var. Þetta er í þriðja skiptið sem lögreglan tekur marijúanaplöntur á þessum bæ á átta mánaða tímabili. Í fyrsta skiptið tók lögreglan svipað magn og um tíu plöntur í annað skiptið. „Við erum með hert eftirlit og aðgerðir gegn málum af þessu tagi hér í héraði,“ segir Sveinn Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli. „Við fáum aðstoð frá fíkniefnadeildinni í Reykjavík, svo og leitarhunda frá Ríkislögreglustjóra. Við erum með úrvalslið, sem skiptir öllu máli.“
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira