Lazlo Nagy í nærmynd 21. janúar 2007 12:58 Nordic Photos/Getty Images
Þrátt fyrir að hin rúmlega tveggja metra háa ungverska vinstrihandarskytta hafi unnið bæði Meistaradeild Evrópu, Evrópukeppni félagsliða og tvo spænska meistaratitla á sínum sjö tímabilum hjá hinum geysisterku Barcelona-mönnum, hefur árangurinn með landsliðinu staðið aðeins á sér. Oft hefur stórskyttan Nagy sýnt hvað í honum býr en svo hafa sést leikir með ungverska liðinu þar sem hann hefur nánast verið ósýnilegur á vellinum. Samkvæmt ungverskum handboltaspegúlöntum er það nú liðin tíð; Nagy er orðinn nógu mótaður og þroskaður leikmaður til að bera landsliðið á herðum sér. Þrátt fyrir að hafa afskaplega ungur farið að leika með ungverska A-landsliðinu náði Nagy að vinna bæði gullverðlaun og svo bronsverðlaun á Evrópumóti unglingalandsliða og hann var bara 15 ára þegar hann lék fyrst með aðalliði Pick Szeged í heimalandinu. Hæfileikar hans þóttu líka það áberandi að 19 ára skrifaði hann undir samning sinn við Barcelona. Fyrir utan óskaplegan skotkraft hefur Nagy með tíð og tíma farið að haga leik sínum skynsamlegar og þróað með sér næmt auga fyrir línuspili. Enn þykir hann ekki nógu lunkinn í að leika inn í hornið og svo þykir hann stundum hægja á liðinu í hraðaupphlaupum.Staða: Hægri skyttaFæddur: 3. mars 1981 í Szeged í UngverjalandiFélagslið: FC Barcelona
Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Íslenski boltinn Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira