Frábær 4. leikhluti tryggði Njarðvík sigur 9. apríl 2007 21:34
Njarðvíkingar hófu titilvörnina í Iceland Express-deildinni með sigri á KR-ingum á heimavelli í kvöld, 99-78. Íslandsmeistararnir sýndu mátt sinn í fjórða og síðasta leikhlutanum með því að sigra KR-inga með 23 stiga mun, en staðan eftir þriðja leikhluta var 72-70, gestunum í vil. Njarðvík er því komið með 1-0 forystu í einvíginu. Leikurinn í kvöld var mjög sveiflukenndur. Heimamenn í Njarðvík voru talsvert sterkari í fyrri hálfleik og leiddu með 14 stigum í hálfleik, 58-44. Vesturbæingar sýndu hins vegar frábæran leik í 3. leikhluta og náðu að komast yfir, 72-70. Njarðvíkingum héldu hins vegar engin bönd í síðasta leikhlutanum, eins og áður segir, og tryggði liðið sér þar sannfærandi sigur. KR-ingar skoruðu aðeins 6 stig í síðasta leikhlutanum. “Við áttum frábæran kafla í 3. leikhluta en einhverra hluta vegna hrundi þetta hjá okkur í 4. leikhluta. Við tökum þetta á fimmtudaginn og ætlum okkur að jafna þetta einvígi strax,” sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR. “Við vorum að spila mjög vel í fyrri hálfleik en vorum værukærir í upphafi þessi seinni. Sem betur fer kom þetta í lokaleikhlutanum,” sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur. “Við getum ennþá bætt okkur og við ætlum okkur að taka næsta leik. Við höfum verið mjög lélegir í leik númer 2 í einvígunum hingað til og nú er það áskorun fyrir okkur að breyta þeirri þróun,” sagði Einar Árni. Jeb Ivey var stigahæstur Njarðvíkinga í kvöld með 24 stig, Brenton Birmingham skoraði 21 stig og Igor Beljanski 20 stig. Hjá KR var Tyson Patterson með 20 stig en Brynjar Þór Björnsson skoraði 18 stig.
Dominos-deild karla Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti Fleiri fréttir Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Sjá meira