Smygl á fíkniefnum stöðvað þriðja hvern dag ársins 29. nóvember 2007 12:44
Á árunum 2003-2006 komu lögreglan upp um samtals 493 tilraunir til að smygla fíkniefnum hingað til lands og jafngildir það því að smygltilraun hafi verið stöðvuð þriðja hvern dag allt tímabilið. Ríkisendurskoðun áætlar að götuvirði helstu flokka haldlagðra fíkniefna hafi numið tæpum 5 milljörðum króna á árinu 2006 einu saman en þá var lagt hald á óvenju mikið magn efna. Þrátt fyrir þessa viðleitni yfirvalda til að hefta framboð ólöglegra fíkniefna er talið að neysla slíkra efna hafi aldrei verið meiri en um þessar mundir. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar „Ráðstafanir gegn innflutningi ólöglegra fíkniefna" kemur fram að viðbúnaður íslenskra yfirvalda vegna fíkniefnasmygls er að vissu leyti meiri en í öðrum löndum. Sé horft til íbúafjölda leggja þau líka árlega hald á meira magn ólöglegra efna á landamærum en gert er víða annars staðar. Miðað við íbúafjölda leggja íslensk löggæsluyfirvöld árlega hald á meira magn ólöglegra fíkniefna á landamærum en flestar nágrannaþjóðir okkar. Engu að síður má efla eftirlit þeirra enn frekar og nýta betur þá fjármuni sem nú er varið til þess með því að herða reglur, bæta aðferðir við áhættustjórnun og auka samvinnu tollgæslu og lögreglu. Þá þurfa yfirvöld að þróa aðferðir til að meta árangur sinn. Í skýrslu sinni bendir Ríkisendurskoðun á ýmsar aðgerðir til að sporna gegn því að ólöglegum fíkniefnum sé smyglað til landsins og nýta betur þá fjármuni sem varið er til þess verkefnis. Stofnunin bendir meðal annars á að bæta megi öryggi tollvörusvæða með því að styrkja girðingar og auka öryggisbúnað þar, auk þess sem athuga þurfi möguleikann á því að bakgrunnur þeirra sem starfa á slíkum svæðum sé jafnan kannaður. Þá er lagt til að reglur um flutning reiðufjár milli landa verði hertar og að sú hámarksfjárhæð sem farþegum er heimilt að taka með sér úr landi án skýringa verði lækkuð til samræmis við það sem tíðkast í nágrannalöndum okkar. Ríkisendurskoðun leggur einnig til að tollyfirvöld endurskoði aðferðir sínar við áhættustjórnun, svo að þær uppfylli alþjóðleg viðmið og standist samanburð við nágrannalönd okkar, og auki samvinnu sína við lögreglu, svo að upplýsingar og þekking nýtist sem best. Þá er lagt til að eftirlit með tilteknum flutningsleiðum til landsins verði hert og að kannaður verði sá möguleiki að veita einu tollembætti vald til að samræma eftirlit á landinu öllu. Slíkt myndi að mati Ríkisendurskoðunar stuðla að markvissara og samræmdara fíkniefnaeftirliti.
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira