Klessur og útafakstur 2. desember 2007 10:35 Það var nóg að gera hjá lögreglunni í nótt.
Sex umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Á Þingvallavegi skömmu eftir miðnætti sofnaði ökumaður undir stýri með þeim afleiðingum að bíllinn fór út í skurð og hafnaði á hliðinni. Ökumann sakaði ekki. Laust fyrir klukkan eitt valt bifreið á Höfðbakka eftir að ökumaður missti stjórn á henni í beygju. Hann slapp með minniháttar meiðsl. Á sama tíma keyrði ungur ökumaður á tvær kyrrstæðar vörubifreiðar á Krókhálsi. Fimm voru í bílnum auk ökumanns en meiðsl eru ekki talin alvarleg. Bíllinn er gjörónýtur að sögn lögreglu. Farþegarnir voru sumir undir lögaldri og voru foreldrar látnir vita. Grunur leikur á að ekið hafi verið, býsna hratt. Skömmu eftir þrjú í nótt varð árekstur á Njarðargötu þegar bifreið var ekið í veg fyrir aðra sem kom úr gangstæðri átt. Farþegi annars bílsins var ekki með belti og skall í framrúðuna. Meiðsl eru þó ekki talin alvarleg. Laust eftir klukkan sex í morgun varð bílvelta á Vatnsendavegi í Kópavogi. Ökumaður missti stjórn á bílnum í beygju og lenti utan vegar og skall í grjótvegg. Tveir voru í bílnum en þá sakaði ekki. Ökumaður er grunaður um ölvun við akstur. Þá var bíl ekið útaf á Reykjanesbraut við álverið í Straumsvík um klukkan níu í morgun en lögreglan segir ekki um alvarlegt slys að ræða.
Innlent Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Fleiri fréttir Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Sjá meira