Skoðun

Hinn þögli meirihluti

Á fundi borgarstjórnar á þriðjudaginn var talsverð spenna í loftinu.

Nýr meirihluti hafði myndast í borgarstjórn, Björn Ingi Hrafnsson færði sig frá okkur fyrrverandi félögum sínum og yfir til nýrra vina.

Margar spurningar lágu í loftinu; fyrir hvað stendur nýi meirihlutinn? Hvernig ætlar hann að leysa augljós ágreiningsefni? Hvað verður um REI?

Fjöldi fólks var á pöllunum og fundinum var útvarpað á netinu.

Allir hlustendur, og ekki síst við sem sátum í borgarstjórnarsalnum, biðu spenntir eftir að heyra svörin. En þá brá svo við að hinir lýðræðiselskandi samræðustjórnmálamenn ákváðu að segja ekki orð á fundinum! Fyrir utan kurteislegar ræður hins nýkjörna borgarstjóra við upphaf og endi fundarins, þagði meirihlutinn þunnu hljóði. Það fékkst ekki einu sinni svar við spurningunni: Af hverju segið þið ekkert? Það var ekki einsog málefnin væru útrædd.

Borgarbúar vildu fá svör við því hvað nýi meirihlutinn vildi gera í málefnum flugvallarins. Margrét Sverrisdóttir var kosin út á það að hann yrði áfram á sama stað. Hún myndi gera sig að pólitísku viðrini með því að samþykkja eitthvað annað. Borgarstjórinn telur hinsvegar að það sé lífsspursmál fyrir borgina að flugvöllurinn fari og það sem fyrst. Afstaða nýs meirihluta í samgöngumálum er líka út og austur. Framsóknarmenn og F-listi vilja mislæg gatnamót á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, en Vinstri-Grænir munu hlekkja sig við vinnuvélarnar þegar framkvæmdir hefjast. Og listinn er lengri. Nýi meirihlutinn er Reykjavík er enda ekki myndaður utan um málefni sem brenna á borgarbúum. Hann er myndaður utan um valdaþrá. Stólaskipti fremur en stefnuskrá.

Og þessvegna þagði meirihlutinn á borgarstjórnarfundi, en sú þögn var hrópandi, einsog fulltrúarnir höfðu sjálfir verið á aukafundi í borgarráði 6 dögum fyrr. En þegar markmiðið náðist, og Björn Ingi hafði runnið á lyktina af áframhaldandi veisluhöldum í Orkuveituhúsinu, þótti ekki ástæða til að skýra borgarbúum frá stefnu nýrra valdhafa. Enda er stefnan ekki til. Og þegar leiðtoginn hefur ekki sagt Svandísi Svavarsdóttur og félögum hvað þau eiga að segja, finnst þeim betra að þegja. Enda alltaf ákveðin hætta á að menn segi skoðun sína, og þá fyrst er fjandinn laus.

Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Sjá meira


×