Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir skrifar 22. ágúst 2026 07:02 Staðan á vinnumarkaði er áhyggjuefni. Merki um kólnun atvinnulífsins verða sífellt skýrari og Seðlabankinn spáir sjálfur auknu atvinnuleysi, fækkun vinnustunda og minni kaupmáttaraukningu á komandi misserum. Á sama tíma hækkar bankinn vexti. Aðhaldið hefur með öðrum orðum kostnað í för með sér og hann fellur að verulegu leyti á heimili og vinnumarkað. Um 40% félagsmanna aðildarfélaga BHM starfa á almennum vinnumarkaði og bandalagið hefur verulegar áhyggjur af áhrifum kólnunarinnar á atvinnu og afkomu þeirra. Að sama skapi eru áform ríkisins og sveitarfélaganna um niðurskurð og uppsagnir starfsfólks váleg tíðindi. Áform kjarasamninganna 2024 hafa ekki gengið eftir og þó ekki sé neitt fengið með því að leita að sökudólg þá er nauðsynlegt fyrir okkur að skilja hvað drífur verðbólguna áfram og hvernig megi ná henni niður með sem minnstum samfélagslegum kostnaði. Verðbólgan er samspil margra þátta Umræðan um verðbólgu hér á landi hefur tilhneigingu til að þrengjast fljótt niður í spurninguna um laun og kjarasamninga. Sú nálgun er of þröng. Verðbólga hér á landi mótast af samspili margra þátta. Ný greining Alþjóðagjaldeyrissjóðsins bendir til þess að innflutt kostnaðarþróun og aðrir ytri þættir geti haft umtalsverð áhrif á verðbólguþróun. Seðlabankinn hefur jafnframt bent á að hækkun opinberra gjalda og áhrif alþjóðlegra kostnaðarskella hafi átt þátt í aukinni verðbólgu á árinu. Verðbólga hér á landi endurspeglar meðal annars þróun húsnæðiskostnaðar, alþjóðlegs verðlags, gengis, opinberra gjaldskráa, verðákvarðana fyrirtækja og verðbólguvæntinga. Viðbrögðin við henni þurfa því að taka mið af þessari heildarmynd. Í því samhengi er fullkomlega eðlilegt að launafólk leitist við að verja sig gagnvart óvissunni. Þegar framfærslukostnaður hækkar og óljóst er hvað er framundan reynir fólk að tryggja kaupmátt sinn. Þau viðbrögð eru afleiðing óvissunnar, ekki orsök hennar. Þess vegna þarf að horfa til lengri tíma. Því meiri fyrirsjáanleiki sem ríkir í efnahagsumhverfinu, því minni verður þörfin fyrir varnarviðbrögð og því auðveldara að ná verðbólgu niður. Kjarasamningar eru einn hluti heildarmyndarinnar en hvorki upphaf hennar né endir. Sjálfvirkar hækkanir geta gert verðbólguna þrálátari Verðtrygging hefur gríðarlegt vægi í íslensku samfélagi, meira en víðast hvar annars staðar. Leigusamningar og ýmsir almennir samningar, svo sem þjónustusamningar, áskriftir og gjaldskrár af ýmsu tagi, taka mið af vísitölu neysluverðs og hækka því gjarnan í takt við hana fremur en að endurspegla raunverulega kostnaðarþróun. Enn eru dæmi um sjálfvirkar verðhækkanir í hagkerfinu af þessu tagi. Slíkt fyrirkomulag þarf ekki að auka verðbólguna til lengdar en getur gert hana þrálátari. Hver hækkun birtist í vísitölunni og getur orðið tilefni næstu hækkunar, þannig að verðskellir sem annars myndu ganga tiltölulega hratt yfir, festast lengur í verðlagi og ganga hægar til baka. Hér liggur ábyrgð sem hvorki launafólk né Seðlabankinn getur axlað eitt og sér. Fyrirtæki þurfa að sýna aðhald í verðákvörðunum og hið opinbera þarf að gæta hófs í gjaldskrárhækkunum. Við verðákvarðanir ætti í ríkari mæli að horfa til raunverulegrar kostnaðarþróunar fremur en sjálfvirkrar vísitölubindingar. Þetta varðar peningastefnuna sjálfa. Þrálát verðbólga kallar á meira og langvinnara aðhald. Þegar verðhækkanir ganga sjálfkrafa í gegnum hagkerfið beitir Seðlabankinn vaxtatækinu af meiri þunga og lengur, sem kallar á aukin útgjöld fyrir heimili og atvinnulíf. Breiðari aðgerðir og breytt umhverfi verðákvarðana gætu dregið úr þessum spíral. Þá aukast líkurnar á að minni vaxtahækkanir dugi, að aðhaldið verði skammvinnara og að svigrúm skapist til vaxtalækkana fyrr en ella. Stöðugleikinn var gagnkvæmt loforð Markmið stöðugleikasamninganna 2024 var að skapa stöðugleika í hagkerfinu, stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta, auka fyrirsjáanleika, draga úr verðbólguvæntingum og styrkja samkeppnishæfni atvinnulífsins. Með langtímasamningum var skapaður aukinn fyrirsjáanleiki í launamyndun. Launafólk samdi um hófstilltar launahækkanir til langs tíma í þeirri von að það myndi draga úr óvissu um launaþróun og slá á verðbólguvæntingar. Þannig lagði launafólk sitt lóð á vogarskálarnar til að skapa forsendur fyrir lægri vöxtum. Ábyrgðin á stöðugleikanum er hins vegar sameiginleg og árangurinn ræðst af því að allir standi við sitt. Ef verðlag og gjaldskrár hækka meira en undirliggjandi kostnaðarþróun gefur tilefni til grefur það undan þeim stöðugleika sem að var stefnt og ýtir undir hærri verðbólguvæntingar. Það sem skiptir mestu máli nú er að draga úr þeirri óvissu sem heimili og fyrirtæki búa við. Það tekst aðeins ef allir leggja sitt af mörkum til að halda aftur af verðhækkunum og styðja við aukinn stöðugleika í efnahagslífinu. Áform um stöðugleika voru sameiginleg niðurstaða kjarasamninga. Til að það gangi eftir þurfa atvinnurekendur, hið opinbera og aðrir lykilaðilar sömuleiðis að leggja sitt af mörkum. Ábyrgðin er sameiginleg og árangurinn ræðst af því að allir standi við sitt. Höfundur er formaður BHM. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Halldórsdóttir Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar