Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson skrifar 23. ágúst 2026 10:15 Þessi hugtök í fyrirsögninni eru skyld. Þau tjá þá áráttu fólks að taka djúpt í árinni í dómum um tjáningu samborgara sinna. Nýlega sagði ég í ræðu: "Skoðanir fólks breytast í deiglu daganna. Ég nefndi fyrr áhrif heiðinnar hugsunar. Heiðnin kemur m.a. fram í svonefndri slaufunarmenningu – í þeirri áráttu að kansellera fólki – reka það út af vellinum eins og dómari í knattspyrnuleik. En reglurnar í knattspyrnu, eru ekki lífsreglurnar stærstu og mestu. Í lífinu gilda hinar kristnu reglur um að elska náungann. Og við elskum þá manneskjuna en þurfum hvorki að elska eða samsinna skoðunum hennar né verkum, hvað þá mistökum og misgjörðum. Þetta þekkja prestar sem stunda sálgæslu og vita að í hverri manneskju býr guðsneisti. Slaufunarmenning er ómenning, hún er heiðindómur. Forfeður okkar og mæður bjuggu við dómsvald sem dæmdi til skóggangs, fjörbaugs eða til fjársekta. Þá var engin fyrirgefning, engin náð, engin miskunn, bara útilokun, bara hefnd og grimmd götunnar. Viljum við innleiða það á ný?" […] "Að vera sér þess meðvitandi að við erum öll syndugar manneskjur er mikilvægara en flest annað. Syndin er ekki einhver móralismi, einhver tilfellafræði um það hvernig fólki verði fótaskortur á lífsveginum. Nei, syndin merkir geigun, að vera í sundur frá skapara sínum, eðli og uppruna, að vera framandi sjálfum sér og lífinu í sínu stóra samhengi. Það er syndin. Hún er geigun. Fyrsti bílinn sem ég átti var syndugur. Hann var með hlaup í stýrinu sem gerði það að verkum að hann leitaði ætíð út af veginum. Mitt hlutverk var að halda bílnum á veginum. Löngu síðar, þegar ég nam guðfræði, varð mér ljóst að sami vandi er í mér sjálfum og öllum öðrum mönnum, körlum sem konum. Við erum öll með hlaup í stýrinu og okkur hættir til að fara út af hinni réttu leið." Staksteinar Morgunblaðsins vitna í Sigurð Má Jónsson blaðamann undir yfirskriftinni: Er skautunin á vinstri vængnum? Sá texti er í útgáfu greinarinnar á heimasíðu minni. Okkur hættir öllum til að slaufa, skauta og skamma, en það er vissulega merkilegt ef sú árátta reynist ríkari á vinstri vængnum en hinnum hægri. Það leiðir hugann að grunngildum Vesturlanda. Hinn frægi heimspekingur, Jürgen Habermas (1929-2026), […] sagði að Vesturlönd hefðu allan sinn siðagrunn úr Biblíunni. Hann tiltók tvö hugtök. Réttlætishugsun Gyðinga úr GT og kærleikskenningu Krists í NT. Habermas var yfirlýstur guðleysingi, en hann þekkti rætur sinnar menningar og gekkst við þeim. Arfur Vesturlanda hvílir á þessum grunni en nú eru öfl sem vilja skekja þennan grunn og hreinlega grafa undan lýðræði og grunngildum Vesturlanda. Dvergríkið Qatar sem telur um 350 þúsund íbúa og er álíka fjölmennt og Ísland. En Qatar veit ekki aura sinna tal. Nú berast upplýsingar í fjölmiðlum um styrki Qatar til bandarískra háskóla og þar er um að ræða milljarðatugi í dollurum talið, en í krónum svo magnað að maður skilur ekki slíkar upphæðir. Og hvað fá þeir í staðin? Þeir fá m.a. það fyrir greiðann að dempa vestræn gildi og það sem Vesturlönd standa fyrir. Frá árinu 1991 hefur Qatar styrkt háskóla í BNA um 6,25 milljarða dollara eða sex-komma-tuttugu-og-fimm-þúsund-milljónir, sem gera 7,6 x 10 í 13. veldi í krónum talið sem eru óskiljanlegar skrilljónir í mínum huga. Hér eru tenglar á greinar um málið. Þarna er um að ræða dvergríki af meiði islam sem er með klærna úti til að svæfa vestræna menningu og eyða henni svo. Qatar er í miklu vinfengi við samtökin Bræðralag múslima sem eru öfgasamtök sem fara ekki dult með það markmið sitt að leggja Vesturlönd í rúst. Þessi lævísi áróður í háskólum í BNA hefur sín áhrif því hann kemur hugmyndum Wóksins inn í huga fólks og fyrir þeim áróðri er Vinstrið veikara en Hægrið. Greinar á meiði félagsvísinda eru vinsælar. Mér þykir margt fóðlegt koma úr þeim ranni en líka æði margt undarlegt. Ef tekin er ögn paródísk nálgun á háskólana í BNA þá eru þar upp til hópa prófessorar sem e.t.v. hafa aldrei tekið þátt í þjóðfélaginu nema til að vera í námi og svo kennslu, aldrei farið á sjó, aldrei grafið skurð eða unnið við uppskipun, flakað fisk í frystihúsi eða unnið ærlegt handtak, nema lyft því gríðarlega grettistaki – eða þannig – sem er að vera í skóla frá 6 ára aldri og til sjötugs. Þekkir slíkt fólk samfélagið? Lokast menn ekki á endanum inni í sinni eigin sápukúlu? Til skamms tíma fóru íslenskir háskólamenn á sjóinn og í skurðina, en færri nú á tímum. Svo er það Vinstrið sem segja má að ráði ríkjum í félagsgreinunum. Vinstrið er þekkt fyrir að vilja ekki hafa mikið að gera með kirkju og kristindóm. Það hríðfellur fyrir grunnhyggnum hugmyndum Wóksins, kærleika án ábyrgðar, réttindum fólks til að fylgja rugli og dellumakeríi á öllum sviðum. Wókið er svona nokkurskonar sykurlaus marxismi, diet-drykkur án allrar næringar, Pepsi Max sem gefur stuð í heilann og koffínið vekur þ.e. gefur Wóke-tilfinningu. Mannkynið er í vissum skilningi á siglingu sem enda mun í brotsjó og skaða. Sú sigling er ekki nein Arkar-ferð eins og Nói fór í og bjargaði mannkyni forðum, en þá arfsögn fengum við í arf í gegnum gyðingdóm og kristni, en hún er jafnframt þekkt í öðrum menningarheimum. Örkin bjargaði. Sérhver kirkja í heiminum hefur kirkjuskip, þ.e. megin sal byggingarinnar. Orðið kirkjuskip vísar til arkarinnar. Þak kirkjunnar veitir skjól fyrir regni og vindum og það er í táknrænum skilningi örkin sem hvelfist yfir söfnuðinn, veitir skjól fyrir veðri og vindum í sálinni og klífur með mæni sínum óveður lífsins. Leitum í það skjól sem gagnast hefur í 5 þúsund ár og lagt grunninn að vestrænum samfélögum með öllum sínum gæðum, mannréttindum, menntun, heilbrigðisþjónustu og frelsi til athafna eftir hollum leikreglum sem upphaflega voru klappaðar í stein en síðar ritaðar á bókfell og bækur og nú stafrænt á skjái sem tiltækir eru í vasa flestra í okkar heimshluta og víðar. Lesum, lærum – og lifum af! Höfundur er prestur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Örn Bárður Jónsson Mest lesið Halldór 12.09.2026 Halldór Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar