Lífið

Vildi kaupa landskika fyrir fermingarféð

Katrínu í Lýsi langaði mjög í jarðarpart á Kjalarnesinu þegar hún var unglingur.
Katrínu í Lýsi langaði mjög í jarðarpart á Kjalarnesinu þegar hún var unglingur. MYND/GVA

Peningarnir sem Katrín Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Lýsis, fékk í fermingargjöf hafa ugglaust ávaxtað sig, þó ekki yrði af landakaupum sem hún stefndi að.

„Aleigan átti að fara í kaup á jarðarskika á Kjalarnesi sem ég hafði mikinn áhuga á. Þar á meðal var fermingarpeningurinn og svo einhverjar sumarhýrur því ég var orðin 17 ára þegar ég fékk þessa flugu í höfuðið. En það varð ekkert af þeim kaupum. Þau gengu ekki upp, því miður,“ segir Katrín glaðlega þegar forvitnast er um fermingargjafirnar.

Katrín kveðst hafa verið byrjuð í hestamennsku á þessum tíma og dreymt um að hafa eitthvert áheldi fyrir hrossin í hæfilegri fjarlægð. „Það var hugsunin að hafa hrossin öll á sama stað. Þess vegna var mér það hjartans mál að eignast þennan skika og þar fyrir utan hef ég alltaf talið það skynsamlega fjárfestingu að kaupa land,“ segir hún. Viðurkennir að það hafi þótt frekar framúrstefnulegt á þessum tíma að sautján ára stelpa væri í slíkum pælingum. Þegar hún segir „þessum tíma“ vaknar spurningin hvenær þetta hafi verið. Nú hlær Katrín. „Það eru margir áratugir síðan. Ég er sko 86 ára en af því ég tek svo mikið lýsi þá lít ég bara svo vel út!“

Á endanum dregur hún í land með þessa fullyrðingu og upplýsir að þetta hafi verið fyrir 27 árum. „Ég fékk reyndar líka hest í fermingargjöf frá foreldrum mínum og það var ofboðsleg hamingja að eignast hann. Hann hét Glói, enda var hann glófextur og ég hef aldrei séð fegurri hest, hvorki fyrr né síðar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×