Ólafur leikur best á stóra sviðinu 17. janúar 2007 10:00 Ólafur Stefánsson hefur skorað 1126 mörk í 238 landsleikjum þar af 328 þeirra í 63 stórmótsleikjum. Fréttablaðið/Anton Brink
Ólafur Stefánsson skoraði „aðeins“ þrjú mörk að meðaltali í fimm síðustu undirbúningsleikjum íslenska landsliðsins en síðustu árin hefur hann sparað sig í æfingaleikjunum en spilað frábærlega á stórmótunum. Ólafur Stefánsson er fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta og algjör lykilmaður í sóknarleik íslenska liðsins. Hann er heimsklassa handboltamaður sem hefur margsannað sig meðal þeirra bestu, bæði með íslenska landsliðinu á stórmótum sem og með félagsliðum sínum Magdeburg og Ciudad Real. Þeir sem hafa áhyggjur af fáum mörkum Ólafs í undanförum æfingaleikjum geta bara setið rólegir því ef það er einhver maður sem íslenska þjóðin getur treyst á að skili sínu á stóra sviðinu þá er það Ólafur Stefánsson. Ólafur skaut aðeins 4 langskotum í uppsettum sóknum í leikjunum tveimur gegn Tékkum og stærsta skýringin er örugglega sú að hann er að hlífa öxlinni sem hefur verið að hrjá hann í vetur. Ólafur hvíldi lítið í leikjunum og þannig verður það örugglega einnig á HM í Þýskalandi þar sem brotthvarf Einars Hólmgeirssonar hefur vissulega rænt hægri vænginn breiddinni. Ólafur skoraði alls 4 mörk utan af velli í Tékkaleikjunum og þar af komu þrjú úr hraðaupphlaupum. Eina mark Ólafs í uppsettri sókn skoraði hann í fyrri hálfleik seinni leiksins þegar Íslendingar voru manni fleiri. Besta dæmið um að Ólafur nái alltaf sínu besta fram á stórmótum er framganga hans í fyrra. Margir höfðu uppi efasemdir um Ólaf eftir að hann skorað aðeins eitt mark með langskoti í lokaundirbúningsleikjunum liðsins gegn Frökkum og það þótti ekki boða gott að besti maður landsliðsins hefði aðeins skorað 2,6 mörk að meðaltali í fimm æfingaleikjum liðsins. Eftir fyrsta leikinn, 36-31 sigur á Serbum létti Ólafur áhyggjunum inn á vellinum. Hann átti stórleik skoraði 8 mörk úr 11 skotum þar af 4 þeirra með langskotum. Ólafur endaði mótið með því að skora 8,3 mörk að meðaltali, gefa 7,0 stoðsendingar í leik, nýta 61% skota sinna og tryggja sér sæti í úrvalsliði mótsins. Kröfurnar og væntingarnar til Ólafs eru alltaf miklar og það er enginn að búast við að hann beri einn uppi sóknarleik íslenska liðsins. Fleiri leikmenn þurfa að taka meiri ábyrgð en íslenska liðið mun þó ekkert hætta að horfa til hæfileika Ólafs í að splundra vörnum mótherjanna með annað hvort hnitmiðuðum skotum eða mögnuðum sendingum. Eins og allir vita þá sést framlag Ólafs til liðsins ekki síst í öllum stoðsendingunum sem hann gefur. Ólafur gaf 17 stoðsendingar í leikjunum tveimur á móti Tékkum og sex sendingar hans til viðbótar sköpuðu vítaköst. Af þessum 23 lykilsendingum þá voru 14 þeirra inn á línu og þá sást nokkrum sinnum til Ólafs vera búinn að taka upp tívolí-sendingar Sigga Sveins sem er ekki að skemma fyrir flórunni á þeim bænum. Ólafur sjálfur er maður pælinganna. Það gleyma fáir sjónvarpsviðtalinu við hann eftir leikinn á móti Serbíu á EM í fyrra. Ólafur sagðist þá hafa tekið þá ákvörðun að verða ungur aftur, dreymdi Boris um nóttina og klæddist Valstreyjunni undir landsliðsbúningnum. Íslenska þjóðin myndi vilja óska að Ólafur væri alltaf ungur og til staðar fyrir íslenska landsliðið. Við getum því fagnað því að hann sé enn í fullu fjöri og beðið spennt eftir því hvernig Ólafur Stefánsson umbreytist í besta handboltamann heims þegar að hann stígur á stóra sviðið í Þýskalandi um næstu helgi.
Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Íslenski boltinn Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira