Fjarvera Mladic óafsakanleg 22. ágúst 2006 06:30 Carla del Ponte Aðalsaksóknari dómstólsins í Haag skaut föstum skotum að Serbíustjórn í gær. MYND/AP
Réttarhald hófst í gær fyrir Stríðsglæpadómstólnum í Haag í Hollandi yfir sjö mönnum sem voru háttsettir í her Bosníu-Serba og eru ákærðir fyrir meinta hlutdeild þeirra í fjöldamorðunum á um átta þúsundum Bosníu-múslima í bænum Srebrenica. En fjarvera æðsta yfirmanns þeirra, hershöfðingjans Ratko Mladic, varpaði skugga yfir réttarhaldið. Mladic „ætti að vera fyrir rétti núna,“ tjáði aðalsaksóknari dómstólsins, Carla del Ponte. Í ávarpi sínu við upphaf réttarhaldsins fordæmdi hún getuleysi stjórnvalda í Serbíu við að hafa uppi á Mladic og öðrum eftirlýstum meintum stríðsglæpamönnum. Hún sagði það „óafsakanlegt“ af yfirvöldum í Belgrad að hafa ekki handtekið hann fyrir löngu og framselt til dómstólsins. „Serbíustjórn er fullfær um að handtaka þessa menn,“ sagði hún. „Hún hefur hingað til einfaldlega neitað að gera það.“ Ráðamenn í Belgrad halda því fram að þeir séu að reyna sitt ýtrasta til að hafa hendur í hári Mladic, en sannað þykir að hann dvelji þar í landi. Að serbneskum yfirvöldum skyldi hafa mistekist að framselja hann til þessa hefur þegar orðið til þess að Evrópusambandið hefur frestað um óákveðinn tíma undirbúningsviðræðum að framtíðarinngöngu landsins í sambandið.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira