Glerbrotunum rigndi yfir Íslendinga 28. ágúst 2006 19:00
Glerbrotum rigndi yfir hóp Íslendinga þegar sprengja sprakk við hliðina á þeim í ferðamannabænum Marmaris í Tyrklandi í gærkvöldi. Um þrjú hundruð Íslendingar eru í Marmaris á vegum Úrvals Útsýnar og Plús ferða. Sextán Vestmannaeyingar voru að ganga eftir aðalgötunni, sem Íslendingarnir kalla Laugaveginn, þegar lítill strætisvagn sprakk í tveggja til þriggja metra fjarlægð. María Pétursdóttir segir að fólk hafi komið börnum út úr strætisvagninum og ein kona hafi skriðið blóðug út úr honum. Íslendingarnir eru þarna á nokkrum hótelum, meðal annars Forum og Fidan þar sem flestir gestanna eru íslenskir. Á Forum voru margir skelfingu lostnir eftir sprengingarnar og gagnrýna ferðaskrifstofuna Úrval Útsýn harðlega fyrir að hafa ekki samband við farþegana fyrr en síðdegis í dag og fyrir að reyna að gera lítið úr atburðum gærkvöldsins. Helgi Jóhannsson stjórnarformaður Úrvals Útsýnar segir að einungis einn farþegi hafi hringt í neyðarsíma ferðaskrifstofunnar og honum hafi verið sinnt. Hótelhaldarar hafa ráðlagt fólki að ferðast ekki með strætisvögnum. Margir eru að fara heim á morgun og íhuga nú að taka leigubíl fremur en fara með rútu. Um 170 Íslendingar hafa bókað sig í ferð til Marmaris á morgun og samtals um eitt þúsund manns á næstu vikum. Helgi Jóhannsson hjá Úrval Útsýn segir að enn hafi ekki borið á afbókunum eftir atburði næturinnar. Í dag sprakk sprengja í Antalya, öðrum ferðamannastað, og varð þremur mönnum að bana auk þess sem á fjórða tug særðist. Samtök sem tengjast PKK, tyrkneska verkamannaflokknum, sögðu í dag að þeir hefðu verið að verki í Marmaris og Istanbul í gær. Hryðjuverkamenn PKK hafa um áratugaskeið barist fyrir sjálfstæðu ríki Kúrda.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira