Þotur og þyrlur farnar í lok september 15. mars 2006 17:00
Bandarísk stjórnvöld hafa tilkynnt ríkisstjórn Íslands að dregið verði stórlega úr starfsemi bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli síðar á þessu ári. Ákveðið hefur verið að orrustuþotur varnarliðsins og björgunarþyrlur þess verði fluttar brott í síðasta lagi fyrir lok september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Íslenskum stjórnvöldum var tilkynnt þessi ákvörðun í símtali sem Nicholas Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, átti við Geir H. Haarde utanríkisráðherra í dag. Þá gekk sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi á fund forsætisráðherra og utanríkisráðherra og gerði þeim nánari grein fyrir ákvörðuninni. Bandaríkjastjórn lýsir yfir eindregnum ásetningi sínum um að standa við varnarsamning ríkjanna frá 1951 og Norður Atlantshafssáttmálann og leggur til að viðræður milli landanna haldi áfram sem fyrst um framhald varnarsamstarfsins. Íslensk stjórnvöld leggja áherslu á að viðræðum sé hraðað því að brýnt sé að niðurstaða náist um framtíðarskipan í varnarmálum. Íslensk stjórnvöld harma þessa ákvörðun bandaríkjastjórnar. Eins og fram hefur komið hafa þau lagt fram ítarlegar tillögur um aukna þátttöku í rekstri Keflavíkurflugvallar í ljósi aukinnar borgaralegrar umferðar um völlinn, sem og þátttöku í rekstri þyrlubjörgunarsveitar varnarliðsins. Utanríkisráðherra hefur óskað eftir að koma á fund utanríkismálanefndar sem fyrst vegna málsins og einnig að flytja Alþingi munnlega skýrslu um það.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira