Sport

Keflavík marði Snæfell

Heil umferð fór fram í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld. Keflvíkingar mörðu sigur á Snæfelli á heimavelli sínum 86-84, Njarðvík lagði Hauka á útivelli 97-72, Grindavík lagði Hamar 83-72, Þór tapaði heima fyrir Fjölni 87-80, KR lagði Skallagrím 85-75 og ÍR sigraði Hött 94-81 í Seljaskóla.

Njarðvík er sem fyrr í efsta sæti deildarinnar með 24 stig, Keflavík í öðru með 22 og KR og Grindavík hafa 20 stig í þriðja og fjórða sæti. Á botninum situr Höttur með 4 stig, en lið og Haukar og Hamar/Selfoss hafa hlotið 6 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×