Andriy Shevchenko fer frá Milan 26. maí 2006 21:28
AC Milan mun hefja viðræður við Chelsea eftir að Andriy Shevchenko staðfesti að hann myndi fara frá Milan. Shevchenko hitti forseta Milan, Adriano Galliani, í dag til þess að ræða framtíð sína. Eftir fundinn sagði Shevchenko, "Ég er að fara vegna fjölskylduaðstæðna, þetta er ekki vegna neinna annarra vandamála og ekki vegna peningamála." Galliani sagði, "Þetta er einhver erfiðasti skilnaður sem ég hef þurft að glíma við eftir að ég kom hingað til Milan. Við munum hefja viðræður við Chelsea og það mun verða erfitt." Shevchenko á bandaríska eiginkonu og er því haldið fram að þau vilji að sonur þeirra Jordan læri ensku. Galliani sagði, "Þetta er sigur enskunnar á ítölskunni. Ég hef reynt að sannfæra hann um að vera áfram, jafnvel einni mínútu fyrir fréttamannafundinn." Milan bauð Shevchenko framlengingu á samningi hans til ársins 2011. "Ósk mín er sú að Milan leyfi mér að fara, auðvitað er ég sorgmæddur. Ég hef séð andlit stuðningsmanna Milan og vegna allra skeytanna sem ég hef fengið," sagði Shevchenko. Eiginkona leikmannsins Kristen Pazak, er talin vera vinur eiganda Chelsea Roman Abramovich. "Kona mín hafði ekkert með þetta að gera. Við tókum þessa ákvörðun saman og höfðum að leiðarljósi framtíð fjölskyldunnar. Ég tala ekki ensku og kona mín talar ekki úkraínsku, eina sameiginlega tungumál okkar í augnablikinu er ítalska. Eini möguleikinn fyrir okkur að kenna börnum okkar hvað við elskum þau mikið er að við lærum ensku," sagði Shevchenko. Shevchenko kom til Milan frá Dynamo Kiev árið 1999 og er hann næst hæsti markaskorari Milan á eftir Gunnari Nordahl sem skoraði 173 mörk. Hann skoraði 19 mörk í 28 leikjum í Seríu-A á síðasta tímabili og skoraði einnig 9 mörk í Meistaradeildinni. Shevchenko mun verða fyrirliði Úkraínu á HM í Þýskalandi í næsta mánuði.
HM 2006 í Þýskalandi Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Fleiri fréttir Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Sjá meira