Svandís bar sigur úr býtum 1. október 2005 00:01
Svandís Svavarsdóttir bar sigur úr býtum í forvali Vinstri grænna í Reykjavík sem haldið var í gær og mun hún því skipa efsta sætið á lista flokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor. Vinstri græn í Reykjavík gengust í gær fyrir forvali á framboðslista sinn fyrir borgarstjórnarkosningarnar á vori komanda. Á kjörskrá voru 750 félagar í hreyfingunni og komu 392 gild atkvæði upp úr kosningunum. Þegar rætt var við Stefán Pálsson, formann kjörstjórnar rétt áður en kjörfundi lauk í gærkvöld kvaðst hann ánægður með kjörsóknina. "Það hefur gengið vel í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem við göngust fyrir slíku forvali og þar sem ekki var búist við miklum átökum um fyrstu tvö sætin erum við sátt." Tíu voru í kjöri og þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöld var ljóst að Svandís Svavarsdóttir, formaður VG í Reykjavík, hefði borið sigur úr býtum en 277 greiddu henni atkvæði sitt í fyrsta sæti, eða rúmlega sjötíu prósent gildra atkvæða. Á hæla henni kom Árni Þór Sigurðsson borgarfulltrúi með samtals 167 atkvæði í fyrstu tvö sætin. Í þriðja sæti hafnaði svo Þorleifur Gunnlaugsson með 160 atkvæði í fyrstu þrjú sætin. Aðrir í kjöri voru Ásta Þorleifsdóttir, Grímur Atlason, Guðný Hildur Magnúsdóttir, Magnús Bergsson, Sóley Tómasdóttir, Ugla Egilsdóttir og Þorvaldur Þorvaldsson. Vinstri græn hyggjast bjóða fram svonefndan fléttulista þar sem sætin skiptast jafnt á milli karla og kvenna. Í ljósi þessa er ljóst að kona mun skipa fjórða sæti listans. Vinstri græn stefna að því að fá í það minnsta þrjá borgarfulltrúa í kosningunum og var ljóst fyrir forvalið að slagurinn stæði því um þriðja sætið. Í skoðanakönnun sem Fréttablaðið gerði fyrir rúmum mánuði sögðust hins vegar 8,8 prósent aðspurða ætla að kjósa Vinstri græn og fengju þau samkvæmt því aðeins einn borgarfulltrúa.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira