Frostnætur tíðar í maí 22. maí 2005 00:01
Það sem af er þessum maímánuði hafa frostnætur verið alltíðar. Lætur nærri að í innsveitum hafi mælst frost aðra hverja nótt í mánuðinum samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Þannig hafa frostnætur verið tólf á Hjarðarlandi í Biskupstungum og þrettán á Staðarhóli í Aðaldal. Í Reykjavík hefur næturfrost einnig verið oftar en venja er til eða átta sinnum líkt og á Akureyri. Mánuðurinn hefur hingað til verið heldur kaldari en í meðalári en á Norðurlandi hefur meðalhitinn verið svipaður á saman tíma (til og með 21. maí) undanfarin þrjú ár. Veðurstofan segir að það sem af sé mánuðinum hafi einnig verið þurrt og úrkoman mælst um eða innan við 10 mm í flestum landshlutum að undanskildu Norðausturlandi. Gróðurframvindan hefur þetta vorið verið heldur hæg af þessum sökum en Veðurstofan bendir á að einkennisveðurlag maímánaðar sé hár loftþrýstingur með björtu veðri og lítilli úrkomu þar sem norðanátt er gjarnan ríkjandi. Veðurstofan gerir ekki ráð fyrir teljandi breytingum í spá sinni fyrir komandi viku.
Fréttir Innlent Veður Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Sjá meira