Bændur vilja svigrúm til sölu 31. janúar 2005 00:01
Bændur vilja meira svigrúm til að selja afburðir sínar beint frá búunum og leggur nefnd á vegum landbúnaðarráðherra meðal annars til að kannað verði hvort slaka megi á kröfum um gerilsneyðingu mjólkur. Draumur landbúnaðarráðherra er sá að ferðamenn á leið um sveitir landsins, jafnt innlendir sem erlendir, geti keypt afurðir sveitanna beint og milliliðalaust af bændunum og þess vegna setti hann nefnd í málið fyrir ári sem kynnti niðurstöður sínar í dag. Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, formaður nefndarinnar, segir að um sé að ræða sóknarfæri fyrir bændur og það sýni sig í Noregi að það færi bændum auknar tekjur að eiga möguleika á að selja framleiðslu sína milliliðalaust. Vandinn er hins vegar sá að lög og reglur hindra bændur svo sem í að selja mjólk beint úr kúnni. Nefndin vill því að kannað verði hvort gera megi tilslakanir. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir að íslenskir og erlendir ferðamenn kalli á þessa þróun og íslenskir bændur séu á margan hátt tilbúnir að verða við þessu kalli. Þess vegna verði stjórnvöld, með samvinnu ráðuneyta og bændasamtaka og ferðaþjónustubænda, að sjá skref stigin í þessa átt og vinna málið hratt. Hann tekur þó fram að menn verði áfram að búa við matvælaöryggi. Það eru ekki síst ferðaþjónustubændur sem sjá tækifærin. Marteinn Njálsson, formaður Félags ferðaþjónustubænda, segir að í öðrum löndum hafi bændur sínar bændabúðir og -markaði. Þar selji bændur vöru sína beint til kaupandans án þess að þurfa að senda hana í dreifingu. Í þessum löndum gildi aðrar reglur og matvælaeftirlit sé með öðru sniði.
Fréttir Innlent Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira