Innlent

Vilja ekki selja grunnnet Símans

Neytendasamtökin taka undir kröfu nokkurra fyrirtækja á fjarskiptamarkaði um að nauðsynlegt sé að aðskilja grunnnet Símans frá fyrirtækinu og að það verði ekki selt með Símanum eins og virðist ætlan stjórnvalda. Þetta kemur fram á heimasíðu samtakanna. Enn fremur minna Neytendasamtökin á að allir aðilar á þessum markaði þurfi að hafa aðgang að grunnnetinu til að geta boðið þjónustu sína. Ef tryggja eigi virka og eðlilega samkeppni á markaði til framtíðar er að mati Neytendasamtakanna nauðsynlegt að grunnnetið verði áfram í eigu hins opinbera sem leigi símafyrirtækjum aðgang að því.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×