Lækkaði sektir olíufélaganna 31. janúar 2005 00:01
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur lækkað sektir olíufélaganna vegna ólöglegs samráðs úr 2,6 milljörðum króna í um 1,5 milljarða, en það var samkeppnisráð krafði félögin um fyrrnefndu upphæðina. Þetta kemur fram í úrskurði nefndarinnar sem birtur var í dag. Vegna samstarfs við samkeppnisyfirvöld við að upplýsa málið er Olíufélaginu gert að greiða 490 milljónir í stað 605 milljóna og Skeljungur skal greiða 450 milljónir króna í stað 1,1 milljarðs. Þá segir í úrskurði áfrýjunarnefndar að Olíuverslun Íslands skuli greiða 560 milljónir króna í stað 880 milljóna í ákvörðun samkeppnisráðs. Félögin kærðu ákvörðun samkeppnisráðs á síðasta ári til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og fluttu þau mál sitt fyrir nefndinni fyrr í þessum mánuði. Í úrskurði áfrýjunarnefndarinnar er m.a. staðfest sú niðurstaða samkeppnisráðs að olíufélögin hafi um níu ára skeið haft með sér skipulagt, umfangsmikið, samfellt ólögmætt samráð. Þá er ekki tekið undir þau sjónarmið olíufélaganna að brot félaganna á samkeppnislögum hafi verið fyrnd eða að málsmeðferð og rannsókn málsins hafi verið svo ábótavant að ógilda bæri niðurstöðu samkeppnisráðs. Áfrýjunarnefndin staðfestir einnig í meginatriðum niðurstöður samkeppnisráðs um einstök alvarleg brot olíufélaganna á samkeppnislögum. Þrátt fyrir að áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti þá niðurstöðu samkeppnisráðs að ávinningur olíufélaganna í formi svokallaðrar einingaframlegðar á fljótandi eldsneyti hafi hækkað á tímabilinu 1996-2001 í samanburði við árin 1993-1995 um 6,5 milljarða króna telur nefndin ástæðu til að lækka þær sektir sem samkeppnisráð hafði ákvarðað olíufélögunum.
Fréttir Innlent Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira