Leggst gegn hlutlausri úttekt 23. nóvember 2005 19:00
Félagsmálaráðuneyti leggst gegn hlutlausri úttekt á fjárhagslegri stöðu Íbúðalánasjóðs sem ákveðið var að ráðast í í júní og ber við kostnaði. Ríkisábyrgðarsjóður getur ekki mælt með frekari ríkisábyrgðum vegna sjóðsins meðan engin úttekt liggur fyrir. Skýrsla ríkisendurskoðunar um sjóðinn er væntanleg í næstu viku. Samkvæmt samkomulagi milli fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra 23. júní átti að fara fram hlutlaus úttekt á fjárhagslegri stöðu Íbúðalánasjóðs. Það var fyrirtækið Ráðgjöf og efnahagsspá sem átti að vinna úttektina. Þeirri vinnu átti að hraða sem kostur væri, ekki síst vegna mikillar gagnrýni og efasemda um stöðu sjóðsins vegna mikils uppgreiðsluvanda. Ekkert bólar hins vegar á úttektinni enda leggst félagsmálaráðuneytið nú gegn því að hún verði gerð samkvæmt heimildum fréttastofu. Í félagsmálaráðuneytinu fengust þau svör að menn hefðu mismunandi skoðanir á því hversu langt ætti að ganga. Þá væri horft í kostnaðinn, deilt væri um hver ætti að greiða reikninginn. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir ríkisábyrgð vegna 88 milljarða króna lánveitinga til íbúðalánasjóð á næsta ári. Hjá lánasýslu ríkisins fengust þær upplýsingar í dag að ef fjárlaganefnd Alþingis kallaði eftir upplýsingum um hvort rétt væri að veita slíkar ríkisábyrgðir væri ekki hægt að svara því játandi eða neitandi meðan engin úttekt hefði farið fram. Meðan óvissa ríkti um stöðu Íbúðalánasjóðs væri ekki hægt að mæla með frekari ríkisábyrgðum fyrir sjóðinn. Ríkisendurskoðun vinnur nú að stjórnsýsluúttekt á Íbúðalánasjóði þar sem sérstaklega er tekið til þess hvort heimilt hafi verið að gera umdeilda lánasamninga við banka og sparisjóði. Fjárlaganefnd kallaði eftir slíkri skýrslu í kjölfar frétta Stöðvar 2 um lánveitingar sjóðsins til bankanna. Skýrslan veður kynnt í næstu viku.
Fréttir Innlent Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Sjá meira