Verkamannaflokkurinn langstærstur 13. september 2005 00:01
Verkamannaflokkurinn er langstærsti flokkurinn á norska stórþinginu eftir kosningarnar í gær, fékk tæpan þriðjung atkvæða og 61 þingmann kjörinn. Næstur honum kemur Framfaraflokkurinn með 22 prósent og 38 þingmenn kjörna. Skipting þingsæta er afgerandi, núverandi stjórnarandstöðu í hag - hún fékk 87 þingmenn á móti 82 þingmönnum borgaraflokkanna. Það er óhætt að segja að niðurstöður þessara kosninga komi nokkuð á óvart. Þær eru að minnsta kosti allt öðruvísi en skoðanakannanir bentu til en þegar í gærkvöldi þegar fyrstu útgönguspár voru birtar var ljóst í hvað stefndi og í morgun lágu svo niðurstöðurnar fyrir. Þær voru mjög afgerandi: stórsigur Verkamannaflokksins og algjör niðurlæging stjórnarflokkanna. Bondevik tók tíðindunum mannalega og hafði samband við konunginn síðdegis. Hann tilkynnti honum að ríkisstjórnin hefði ekki lengur meirihluta á þingi eins og venja er þegar úrslitin eru jafn afgerandi og í þetta sinn. Bondevik situr þó áfram sem forsætisráðherra um stund og leggur fram fjárlagafrumvarp í næsta mánuði. Eftir það hverfur hann af vettvangi norskra stjórnmála og hefur lýst áhuga á alþjóðlegum mannúðarstörfum. Brotthvarfið hlýtur að vera honum nokkuð biturt því að borið saman við önnur Evrópulönd vegnar Norðmönnum hreint ekki illa og víða hefði þótt langsótt að spá því að leiðtogi ríkisstjórnar yrði felldur undir þessum kringumstæðum. Bondevik sagði í dag að í upphafi gærkvölds hefði spennan verið mikil en og ríkisstjórnin hefði eygt möguleika á að halda áfram. Eftir kvöldið hefði sú von horfið og hann hefði orðið fyrir miklum vonbrigðum. Asðpurður hvort hann væri farinn að huga að nýju starfi sagðist Bondevik ekki farinn að gera það og hann hefði ekki miklar áhyggjur af því. Jens Stoltenberg var skiljanlega kampakátur í dag. Kannanir síðustu dagana fyrir kosningar bentu ekki til þess að gengi Verkamannaflokksins eða rauðgræna bandalagsins yrði svo gott. Hann sagði aðildarflokka bandalagsins sem betur fer sammála um mikilvægustu málin en þetta væru þrír flokkar og ólíkir og ljóst væri að þeir væru ósammála í nokkrum málum. Til dæmis hefðu þeir ólík sjónarmið varðandi orkumál og gasboranir í Barentshafi. Flokkarnir yrðu því að setjast niður til að komast að samkomulagi sem allir gætu sætt sig við. Stoltenberg hefur með Sósíalíska vinstriflokknum og Miðjuflokknum umboð til að gera breytingar í Noregi og það voru breytingarnar sem fólkið á götunni vildi sjá í dag. Þótt þessar kosningar hafi markað endalok stjórnmálaferils Kjells Magne Bondeviks getur hann ef til vill huggað sig við það að hægri flokkarnir fengu alls tuttugu þúsundum fleiri atkvæði en vinstri flokkarnir.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fleiri fréttir Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Sjá meira