Sport

Keflavík skellti ÍA á útivelli

Keflavík skellti ÍA, 5-0, á útivelli í Landsbankadeild kvenna í fótbolta í gærkvöldi. Ágústa Jóna Heiðdal, Lilja Íris Guðmundsdóttir, Hrefna Guðmundsdóttir, Nína Ósk Kristinsdóttir og Vesna Smiljkovic skoruðu mörkin. Keflavík er í fimmta sæti með níu stig en Skagastúlkur eru neðstar án stiga. Sjöundu umferð lýkur í kvöld með þremur leikjum. Efsta liðið Breiðablik sækir FH heim í Kaplakrika, KR tekur á móti Val og Stjarnan og ÍBV eigast við í Garðabæ. Flautað verður til leiks klukkan 20.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×