Sport

Sparkað í sólinni í kvöld

Í kvöld fara fram þrír leikir í Landsbankadeild kvenna og einn í karlaflokki en fyrstu umferð Landsbankadeildar karla lýkur í kvöld. Fylkismenn taka á móti KR kl. 20.00 og verður leikurinn í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Íslandsmeistarar Vals í kvennaflokki heimsæka Breiðablik á Kópavogsvöll, ÍBV tekur á móti ÍA í Eyjum og Keflavíkurstúlkur taka á móti FH. Allir leikirnir hefjast kl. 20.00 en að auki fara fram tveir leikir í forkeppni VISA bikarkeppni KSÍ og hefjast báðir kl. 20.00. Grótta tekur á móti GG á KR-velli og Sindri fær Hött í heimsókn á Sindravelli í Höfn í Hornafirði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×